Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
RENDER FJOLBYLI - minni
Svæðinu er skipt upp í sex reiti. Tvo reiti fyrir raðhús og einbýli, einn fyrir fjölbýlishús, einn fyrir leikskóla, einn fyrir núverandi veituhús og að lokum einn fyrir einbýlishús og útivistarsvæði við Löngulág. Mynd/Trípólí Arkitektar

Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur tilnefnt þrjá fulltrúa í faghóp sem mun koma að hönnun nýs leikskóla í Löngulág. Fræðsluráð tilnefndi eftirfarandi fulltrúa í faghópinn: Eyju Bryngeirsdóttur, leikskólastjóra Kirkjugerðis, Helgu Björk Valgerðar Björnsdóttur, leikskólastýru á Sóla og Guðrúnu Þorsteinsdóttur, aðstoðarleikskólastjóra Víkurinnar.

Ráðið telur að með þessari skipan sé tryggð góð fagleg breidd og reynsla frá öllum leikskólum bæjarins, sem muni styðja vel við vinnu starfshópsins á hönnunarstigi.

Félagsmiðstöðin sigraði í Stíl – nemendur keppa áfram í Röddinni

Fræðsluráð Vestmannaeyja sendir Félagsmiðstöðinni hamingjuóskir eftir sigur í landskeppninni Stíl sem fram fór í Fagralundi. Ráðið hrósar jafnframt metnaðarfullu og skapandi starfi sem fram fer í félagsmiðstöðinni.

Einnig var þátttakendum í upplestrarkeppninni Röddinni óskað til hamingju með góðan árangur. Þrír nemendur munu keppa fyrir hönd Vestmannaeyja á Suðurlandi síðar í vor.

Nýjustu fréttir

Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.