Í vikunni fóru starfsmenn Herjólfs á æfingu um hvernig rýmingu skipsins skuli háttað ef upp kemur neyðarástand. 118 „farþegar“ voru um borð, sem aðstoðuðu starfsmennina við að leysa verkefnið. Fulltrúar Siglingastofnunar og Slysavarnaskólans voru einnig á staðnum til að fara í gegnum æfinguna ásamt starfsmönnum. Eyjafréttir höfðu samband við Gunnlaug Grettisson, rekstrarstjóra Herjólfs, en hann var ánæg ður með hvernig til tókst.