Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Frá framkvæmdunum í sundlauginni. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar fór yfir stöðu framkvæmda í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í liðinni viku. Nokkur verkefni eru komin á lokastig en önnur eru enn í vinnslu.

Meðal þess sem unnið hefur verið að eru breytingar á kaffistofu starfsmanna, afgreiðslu og skrifstofuaðstöðu. Kaffistofa og afgreiðsla eru nú á loka metrunum og aðeins eftir að ljúka rafmagnsfrágangi. Þá er breytingum á skrifstofum og aðstöðu íþróttakennara lokið.

Einnig stendur yfir endurnýjun á hreinsikerfi sundlaugarinnar. Uppsetning og tengingar á sandsíum ganga vel og er nú unnið að lagningu leiðslna til og frá síunum, áfram að dælubúnaði. Samhliða því er smíði nýrrar rafmagnstöflu á góðri leið, en hún mun hýsa stjórnbúnað, tengingar við dælur og tilheyrandi skynjara.

Framkvæmda- og hafnarráð þakkaði sviðsstjóra fyrir yfirferðina en benti jafnframt á að framkvæmdirnar hefðu dregist meira en upphaflega var gert ráð fyrir. Tafirnar séu meðal annars raktar til atriða sem komu upp á meðan á verkinu stóð. Að mati ráðsins undirstrikar reynslan mikilvægi þess að undirbúningur og verkáætlanir séu eins ítarlegar og kostur er áður en ráðist er í sambærileg verkefni.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.