Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Sea Life í gær. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Mikil gleði og líf var í Sea Life Beluga Whale Sanctuary í gær, laugardaginn 14. febrúar, þegar opnunarhátíð safnsins fór fram. Fjölmargir gestir lögðu leið sína á staðinn til að taka þátt í hátíðarhöldunum og kynna sér starfsemina.

Boðið var upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri og á milli klukkan 13:00 og 15:00 var opinn markaður þar sem nokkrar verslanir í Eyjum buðu upp á sölubása. Stemningin var góð og fjölskyldur nutu þess að verja deginum saman við þetta nýja og áhugaverða aðdráttarafl.

Hátíðarhöldunum lýkur ekki með deginum í gær því í dag, 15. febrúar, verður einnig opið frá klukkan 11:00 til 16:00. Aðgangur er ókeypis og því kjörið tækifæri fyrir þá sem ekki komust í gær að líta við og upplifa svæðið. Myndasyrpu frá opnunarhátíðinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.