Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
Fjölmargir mættu í Höllina í dag og perludu „Lífið er núna“ armbönd til styrktar mikilvægu starfi Krafts. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Félagið Kraftur, sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, stóð fyrir vel heppnuðum viðburði í Höllinni í Vestmannaeyjum í dag. Viðburðurinn er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu félagsins. Að þessu sinni var perlað nýtt „Lífið er núna“ armband, sem margir þekkja sem tákn um styrk, von og samstöðu.

Markmið dagsins var að vekja athygli á mikilvægu starfi Krafts og safna fé til að styðja við ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein, sem og fjölskyldur þeirra og aðstandendur. Fjölmargir lögðu leið sína í Höllina, til að perla og sýndu málefninu þannig hlýhug í verki.

Stemningin var notaleg og samstaðan áþreifanleg þar sem gestir á öllum aldri settust niður, perludu armbönd og lögðu sitt af mörkum til góðs málefnis. Myndasyrpu frá viðburðinum má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.