Ætla að klára þjálfaramálin fyrir næsta leik
ÍBV. fótbolti. karlar.

ÍBV stefnir á að ganga frá þjálfararáðningu fyrir leik liðsins gegn FH á laugardaginn.  Pedro Hipolito var rekinn eftir tap gegn Stjörnunni um þarsíðustu helgi og Ian Jeffs, aðstoðarþjálfari, stýrði liðinu í 2-1 tapi gegn KR um síðustu helgi.

„Þetta verður klárað núna í vikunni. Þetta er í vinnslu og verður klárt fyrir næsta leik,” sagði Magnús Elíasson hjá knattspyrnuráði ÍBV við Fótbolta.net í dag. Ian Jeffs verður áfram í þjálfarateymi ÍBV en Magnús vill ekki gefa upp hvort að hann verði aðalþjálfari eða aðstoðarþjálfari né hvort að þjálfararáðningin verði út tímabilið eða til lengri tíma.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.