ÍBV tekur á móti Val í toppleik Olísdeildar karla en liðin sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar. �?etta er lokaumferð 2. umferðar Íslandsmótsins af þremur en sætaröð eftir aðra umferðina, ræður hvaða liðum ÍBV mætir á heimavelli í þeirri þriðju. Eyjamenn mæta með sært stolt í leikinn eftir tap gegn 1. deildarliði Aftureldingar í bikarnum á sunnudaginn en það gera Valsmenn líka, sem töpuðu fyrir Haukum í sömu keppni á mánudag.
�??Við verðum að fá fullt hús. Við skiptum um sal til að rúma fleiri og ég hef enga trú á öðru en að allir sem hafi minnstan áhuga á handbolta, vilji sjá þennan toppleik,�?? sagði Grétar �?ór Eyþórsson, hornamaður í liði ÍBV. �??�?að er langt síðan við höfum verið í efstu deild og við erum ofarlega miðað við að vera nýliðar. Núna fer hver leikur að skipta ansi miklu máli. Ef ég á að vera alveg heiðarlegur, þá varð ég fyrir vonbrigðum með stuðningin í bikarleiknum gegn Aftureldingu enda var Eyjakvöld kvöldið áður og þúsund Eyjamenn í bænum. En við leikmenn ætlum að bæta upp fyrir tapið og vonandi bæta stuðningsmenn líka fyrir tapið. En ég þakka auðvitað þeim sem mættu á bikarleikinn, þeir stóðu sig vel en ég hefði viljað sjá fleiri.
Grétar segir mikilvægt að ná öðru sætinu fyrir þá þriðju. �??�?að er stutt eftir af annarri umferðinni en svo erraðað upp í þriðju eftir því hvar þú ert í deildinni. �?að er betra að vera í öðru en þriðja upp á niðurröðunina, upp á hverjum við mætum heima. Eins og er, erum við að horfa á þennan leik sem úrslitaleik fyrir það, að vera í öðru sæti.�??
Allt skilið eftir á vellinum
Margir eru á því að ÍBV og Valur séu næst bestu lið deildarinnar á eftir Haukum. Ertu sammála því?
�??Já og nei. Miðað við töfluna eru þetta liðin í öðru og þriðja sæti og eitt stig sem skilur að. En eins og mótið er að spilast, þá eru Haukar í fyrsta sæti en svo er þetta bara fimm liða pakki fyrir neðan. �?etta verður mjög erfiður leikur. Bæði lið töpuðu grátlega í bikarnum, þannig að það verða tvö særð dýr sem mæta til leiks. Maður lofar ekki fallegasta handboltanum en það verður allt skilið eftir á vellinu.�??
Eru allir heilir?
�??�?að verða allir heilir þegar flautað verður til leiks. �?að eru öll lið, sérstaklega þau sem voru í bikarnum, að spila tvo leiki í viku. �?að eru allir eitthvað lemstraðir en það verða allir með þegar flautað verður til leiks á fimmtudaginn,�?? sagði Grétar og hvatti um leið alla til að mæta á þennan toppleik á fimmtudag. �??Nú er lag fyrir áhorfendur og leikmenn ÍBV að bæta fyrir bikartapið og vonandi förum við langt með að fylla höllina og gera hana að almennilegri gryfju. Áfram ÍBV!�??