Í frétt á
vef Landsnets eru tíundaðar ástæður rafmagnsleysisins sem hrjáði Eyjamenn í gær og olli því meðal annars að margir misstu af sögulegum leik Hollands og Íslands í undankeppni EM. Talið er að útleysing á spenni í Rimakoti hafi orsakast af álagi sem skapaði þrýsting í búnaði í spenninum.
Á sunndaginn kl. 18.45 mætir Ísland svo Kasakstan og getur tryggt sér farseðilinn á EM. En á sunnudaginn verður einmitt aðalspennirinn, sem verið hefur til viðgerðar síðan 11. ágúst, tengdur á ný að ósk HS veitna í Vestmannaeyjum. En þessi dagur er valinn af HS-veitum svo að vinnan við tenginguna hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini veitunnar. Mega því einhverjir búast við rafmagnstruflunum á sunnudaginn. “Vinna við tengingu spennisins hefst strax á sunnudagsmorgninum og er reiknað með að hún standi fram á kvöld. Rjúfa þarf orkuafhendingu frá raforkuflutningskerfinu á meðan tengingin fer fram og verður þá varaafl keyrt fyrir forgangsorkunotendur í Vestmanneyjum.” segir í frétt Landsnets.
�?að er því spurning hvort Eyjamenn nái að sjá þennan sögulega fótboltaleik.
Fréttina af vef Landsnets má lesa hér að neðan:
“Talið er að útleysing á spenni í Rimakoti hafi orsakast af álagi sem skapaði þrýsting í búnaði í spenninum. Spennirinn hefur verið undir töluverðu álagi síðan hann var tengdur til bráðabirgða í stað spennis sem bilaði þann 11.ágúst síðastliðinn.
Til að mæta truflunum sem gætu komið upp í Vestmannaeyjum er Landsnet með samning við HS Veitur um að til staðar séu 7 MW af uppsettu varafli. Í gær komu hins vegar upp vandamál við framleiðslu varaafls í um það bil tvær klukkustundir á meðan bilun stóð yfir. Bilunin í spenninum og í framleiðslu varaafls kom á versta tíma fyrir notendur á svæðinu, þar sem einn mikilvægasti landsleikur Íslendinga stór yfir á sama tíma. Landsneti þykir miður að bilunin hafi leitt til þess að margir misstu af þessum mikilvæga leik.
Viðgerð lokið á spenni sem bilaði í ágúst �?? tengdur á ný á sunnudag
Viðgerð á spenninum sem bilaði þann 11.ágúst er lokið og er búið að flytja hann í tengivirkið í Rimakot. Í samráði við HS Veitur, dreifiveituna í Eyjum, er búið að skipuleggja tengingu spennisins inn á kerfið á sunnudag svo hún hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini veitunnar. Vinna við tengingu spennisins hefst strax á sunnudagsmorgninum og er reiknað með að hún standi fram á kvöld. Rjúfa þarf orkuafhendingu frá raforkuflutningskerfinu á meðan tengingin fer fram og verður þá varaafl keyrt fyrir forgangsorkunotendur í Vestmanneyjum.”