Aftur rafmagnsleysi á sunnudag?
Í frétt á vef Landsnets eru tíundaðar ástæður rafmagnsleysisins sem hrjáði Eyjamenn í gær og olli því meðal annars að margir misstu af sögulegum leik Hollands og Íslands í undankeppni EM. Talið er að útleysing á spenni í Rimakoti hafi orsakast af álagi sem skapaði þrýsting í búnaði í spenninum.
Á sunndaginn kl. 18.45 mætir Ísland svo Kasakstan og getur tryggt sér farseðilinn á EM. En á sunnudaginn verður einmitt aðalspennirinn, sem verið hefur til viðgerðar síðan 11. ágúst, tengdur á ný að ósk HS veitna í Vestmannaeyjum. En þessi dagur er valinn af HS-veitum svo að vinnan við tenginguna hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini veitunnar. Mega því einhverjir búast við rafmagnstruflunum á sunnudaginn. “Vinna við tengingu spennisins hefst strax á sunnudagsmorgninum og er reiknað með að hún standi fram á kvöld. Rjúfa þarf orkuafhendingu frá raforkuflutningskerfinu á meðan tengingin fer fram og verður þá varaafl keyrt fyrir forgangsorkunotendur í Vestmanneyjum.” segir í frétt Landsnets.
�?að er því spurning hvort Eyjamenn nái að sjá þennan sögulega fótboltaleik.

Fréttina af vef Landsnets má lesa hér að neðan:

“Talið er að útleysing á spenni í Rimakoti hafi orsakast af álagi sem skapaði þrýsting í búnaði í spenninum. Spennirinn hefur verið undir töluverðu álagi síðan hann var tengdur til bráðabirgða í stað spennis sem bilaði þann 11.ágúst síðastliðinn.

Til að mæta truflunum sem gætu komið upp í Vestmannaeyjum er Landsnet með samning við HS Veitur um að til staðar séu 7 MW af uppsettu varafli. Í gær komu hins vegar upp vandamál við framleiðslu varaafls í um það bil tvær klukkustundir á meðan bilun stóð yfir. Bilunin í spenninum og í framleiðslu varaafls kom á versta tíma fyrir notendur á svæðinu, þar sem einn mikilvægasti landsleikur Íslendinga stór yfir á sama tíma. Landsneti þykir miður að bilunin hafi leitt til þess að margir misstu af þessum mikilvæga leik.
Viðgerð lokið á spenni sem bilaði í ágúst �?? tengdur á ný á sunnudag
Viðgerð á spenninum sem bilaði þann 11.ágúst er lokið og er búið að flytja hann í tengivirkið í Rimakot. Í samráði við HS Veitur, dreifiveituna í Eyjum, er búið að skipuleggja tengingu spennisins inn á kerfið á sunnudag svo hún hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini veitunnar. Vinna við tengingu spennisins hefst strax á sunnudagsmorgninum og er reiknað með að hún standi fram á kvöld. Rjúfa þarf orkuafhendingu frá raforkuflutningskerfinu á meðan tengingin fer fram og verður þá varaafl keyrt fyrir forgangsorkunotendur í Vestmanneyjum.”

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.