Eins og flestir vita þá getur lífið verið hverfult og stundum þunn lína á milli þess þegar maður liggur í fullkomnu öryggi í faðmi einhvers sem maður elskar út í vandræðalega augnablikið þegar tvær manneskjur kveðjast eftir skyndikynni.
Ef það er eitthvað sem flestir smáborgarar hafa áhuga á, þá er það hverjir eru með hverjum og hverjir eru komnir út á makamarkaðinn eins og hann er stundum kallaður.
Sumir kjósa að vera einir á meðan aðrir troða marvaða í hinni eilífu leit af ást sem getur verið erfitt í smábæ eins og Vestmannaeyjum.
Til að gera hlutina auðveldari fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á leitinni, þá ætla ég að kynna í þetta skiptið lista yfir topp tíu heitustu piparsveina Vestmannaeyja.
Og hér eru þeir allir.
10.
Kristgeir Orri Grétarsson, Einar Ottó Hallgrímsson og Hjálmar Viðarsson.
Eins og glöggir lesendur hafa jafnvel áttað sig á, þá eru þrjú ung karldýr í tíunda sæti. �?etta er ekki prentvilla því þessir peyjar eru alltaf saman, og eru eiginlega einn og sami maðurinn.
Hörku duglegir naglar sem allir eru búnir með Stýrimannaskólann og starfa allir á sjó.
Mestu líkurnar eru að finna þá í eftirpartýi. Ef ekki þar þá finnast þeir alveg pottþétt í hádeginu á sunnudegi á 900 með einn ískaldan afréttara og brakandi ferskar partýsögur.
Heyrst hefur að þeir séu byrjaðir að róast og því einstakt tækifæri til að ná sér í einn af þessum hressu Eyjapeyjum.
9.
Kolbeinn Aron Arnarsson
Síðustu ár hafa verið viðburðarík hjá Kolbeini. �?ó svo að hann hafi áður látið að sér kveða sem forsöngvari partýhljómsveitarinnar The Goggz.
�?á hefur Kolbeinn verið í marki meistaraflokks ÍBV í handbolta síðustu ár og varð með þeim Íslands- og bikarmeistari.
Gullár í lífi Kolbeins og fékk hann mikla athygli frá kvenpeningi landsins en einhvern veginn gleymdi hann sér í fögnuði titla.
Heyrst hefur að Kolbeinn sé kominn með smá áhyggjur af kvenmannsleysi sínu og hefur því ákveðið að semja við Aftureldingu í von um að finna sér konu í borg óttans.
8.
Sigurjón Viðarsson
Einn af gulldrengjum Minnu og Steinu í Metabolic Vestmannaeyja. Sigurjón er ótrúlega vel gefinn og hefur allt nám leikið við hann frá blautu barnsbeini. Hann ætlaði lengi vel að verða lögfræðingur en snerist hugur þegar hafið kallaði. Hann kláraði Stýrimannaskólann og vinnur nú sem slíkur á �?órunni Sveinsdóttur.
7.
Daði Magnússon
Grjótharðasti tölvunarfræðingur Vestmannaeyja sem stundar sjómennsku í frítímanum. Kemur undan hinu merka Braga Steingríms-�?órarakyni.
Daði hætti vinnu hjá Smart Media fyrir nokkru til að fara á malbikið til þess eins að finna sér konuefni. Tvennum sögum fer af gengi Daða í þessari leit sem ætti ekki að vera mikið vandamál með þessi bambabláu augu og karlmannlegu Jay Leno hökuna sína.
Stundum kallaður Paris Hilton Vestmannaeyja vegna þess að hann er sonur Magnúsar Braga sem er eigandi Hótels Vestmannaeyja.
6.
Sigurður Sigurðsson
Sú kona sem nær í Sigurð þarf ekki að svelta því Sigurður stundar nær alla veiði sem hægt er að stunda á Íslandi. Allt frá dorgveiði í gegnum ís að hreindýraveiðum á Austurlandinu.
Einnig er Sigurður einn af þeim merku karlmönnum sem fær áhuga á flestu í kringum sig. Hann talar einhver sex tungumál og kikna margar í hnánum þegar hann talar spænsku við innfædda.
Hann er einnig búinn að læra margt, þá helst ber að nefna Sjávarútvegsfræði, Spænsku og Stýrimannaskólann. Hann starfar í dag sem stýrimaður á Sigurði Ve.
5.
Hermann Hreiðarsson
Ef til vill þekktasti bitinn í súpunni. �?jóðþekktur og hvers manns hugljúfi. Stracta hóteleigandi og athafnamaður. Eftir mörg ár atvinnumennsku í Englandi sneri Hemmi aftur til Íslands og hefur stundað þjálfun sem er hans ástríða.
Í dag hefur hann tekið við kvennaliði Fylki sem gæti orðið erfitt verkefni. Hermann hefur sýnt sínar viltu hliðar á vellinum og á hliðarlínunni en er mjúkur eins og þriggja barna einstæð móðir í Costco þegar enginn fótbolti er nálægt.
4.
Róbert Aron Hostert
�?trúlega hæfileikaríkur handboltamaður ÍBV sem hefur góða nærveru og gæti brætt súrál með strákslegu brosi sínu. �?ær hafa ekki margar farið rykfallnar í burtu prinsessurnar frá Róberti í gegnum tíðina.
Heyrst hefur eftir ónefndum heimildarmanni mínum að Róbert Aron sé orðinn leiður á piparsveinalífinu og sé að leita að hinni einu réttu.
(Veit ekki hvern ég er að plata með ónefnda heimildarmanninum, það vita það allir að það er Einar Gauti sem kjaftaði þessu).
3.
�?lafur Björgvin Jóhannesson
Einn af þeim sem allir í Vestmannaeyjum taka eftir. �?ekktur fyrir góðmennsku sína sem kom honum jafnvel um koll á sínum tíma því hann var það góður við sjálfan sig að hann náði að éta sig hátt upp í tvö hundruð kíló en er í dag búinn að rífa af sér u.þ.b. hundrað kíló og hvergi hættur.
Keypti sér fyrir stuttu fallega íbúð á Ásaveginum sem bíður eftir því að láta troða í sig Omaggio vösum og Ittala drasli.
�?lafur er framkvæmdastjóri Skýlisins og tilvonandi erfingi þess.
2.
Sigurgeir í Skuld
Sem þarf vart að kynna enda búinn að vinna sig inní hjörtu allra Vestmannaeyinga með myndum sínum. Einstakt náttúrubarn sem fær alla til að brosa með einstökum húmor og smitandi hlátri.
Honum hefur tekist það ótrúlega afrek að vera vaxinn eins og Grískt skurðgoð frá unglingsaldri.
Hann er einn af orginal bjargveiðimönnum Eyjanna sem gerir hann af eftirsóttu eintaki. Á alveg tíu spræk ár eftir fyrir þær sem vilja einn með reynslu.
1.
Jóhann Sigurður �?órarinsson
Eftirsóttasti piparsveinn Vestmannaeyja. Eftir að hafa komið á markaðinn úr heiðskýru lofti hefur hann ekki haft mikinn tíma í að finna ástina. Enda nóg að gera í vinnunni ásamt því að sinna núverandi ást sinni sem er frumkvöðlastarf sem á eftir að gjörbilta heilbrigðisgeiranum.
Jóhann Sigruður hefur alla tíð hugsað langt inn í framtíðina sem sést best á því að hann er nú búinn að stunda eldrimannaleikfimi síðustu fimm ár með körlum sem flestir eru á sextugs aldri, tvisvar í viku í Týsheimilinu.
Hann er einnig búinn vinna mikið í sjálfum sér og að losa sig við slæma siði eins og að taka í nefið sem hefur gengið einkar vel en með smá hækju sem er gufuretta. Ef horft er lengur en mínútu á hann má sjá fallega dalalæðu koma úr vitum hans, sem er bæði dáleiðandi og róandi.
Jóhann Sigurður er með afnot af einni fallegstu penthouse íbúð Reykjavíkur og hefur heyrst í bænum að hann sé að skoða flottustu penthouse íbúð Vestmannaeyja sem verður tilbúin árið 2020.
Jóhann Sigurður hefur gaman af fólki, að skemmta sér, að vinna að því sem hann hefur gaman af og ferðalögum.
Hann leitar af góðri konu sem er tilbúin að labba með honum inn í eilífðina meðfram Ofanleitishamrinum, setjast við hlið hans og horfa á sólina setjast á meðan hann blæs gufureykshjörtu út á hafið.
Ágúst Halldórsson