Þrír knattspyrnumenn skrifuðu undir samning hjá ÍBV í kvöld. Þetta eru reynsluboltarnir Albert Sævarsson, markvörður og miðjumaðurinn Yngvi Borgþórsson en báðir framlengja þeir samningi sínum um eitt ár. Auk þeirra skrifaði hinn ungi Ingólfur Einisson undir tveggja ára samning hjá ÍBV en Ingólfur hefur gengið í gegnum alla yngri flokka ÍBV en er nú að stíga sín fyrst skref með meistaraflokki.