Undirbúningur fyrir þrettándagleðina er nú í fullum gangi og ekki annað að sjá en að veður verði þokkalegt. Spáin næsta sólarhringinn er suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, hvassast við ströndina en fer að lægja síðdegis. Suðlæg átt, 8-15 og víða dálítil él á morgun. Frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars 0 til 5 stig. Veðrið ætti því ekki að vera til trafala þegar jólasveinar hefja blysför sína af Hánni og slást í för með Grýlu og Leppalúða og tröllum og álfum í skrúðgöngu um bæinn. Hún endar að venju á malavellinum við Löngulág þar sem jólin verða kvödd með tilheyrandi ærslum og látum.
Dagskrá þrettándahátíð álfa, trölla og jólasveina 2015 er eftirfarandi:
Fimmtudaginn 8. janúar
Kl. 21 | Blítt og létt hópurinn kemur fram á Eyjakvöldi á Kaffi Kró
Föstudaginn 9. janúar
Kl. 14 �?? 15.30 | Diskó – grímuball Eyverja í Höllinni
Jólasveinninn mætir og aðrar fígúrur einnig. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá glaðning frá Eyverjum og nammipoka frá jólasveininum.
Kl. 19 | Hin eina sanna �?rettándagleði ÍBV
Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll og m.fl .
Kl. 00 | �?rettándaball
Stórsveitin BUFF leikur fyrir dansi.
Laugardaginn 10. janúar
Kl. 12 �?? 15 | Tröllagleði í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Fjölskylduleikir í öllum íþróttasölum undir stjórn íþróttaþjálfara, allir íþróttasalir opnir. Fjölbreyttar þrautir í umsjón Írisar Sæmundsdóttur og íþróttafélaganna. Leikfélag Vestmannaeyja verður á staðnum.
Kl. 13 �?? 17 | Langur laugardagur í verslunum
Tröllatilboð og álfaafslættir í fjölda verslana og veitingastöðum bæjarins.
Kl. 13 | Einarsstofa
Opnun myndlistarsýningar á verkum Jóhönnu Erlendsdóttur, móður Guðna Hermansen. Sýningin er unnin í samstarfi við barnabörn Jóhönnu sem munu fjalla stuttlega um þessa gleymdu listaperlu Eyjanna.
Kl. 13.30 | Bryggjan, Sagnheimar
�?rslit í myndakeppni Sagnheima- Vilborg og hrafninn. Georg víkingur, vinur Vilborgar, kemur í heimsókn. Allir fá að fara í sjómann við alvöru víking.
Kl. 14 | Bryggjan, Sagnheimar
Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttur kynnir og les upp úr nýrri sögu sinni, Silfurskrínið.
Kl. 16.15 | Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
ÍBV-Grótta í handknattleik kvenna
Kl. 20.30 | Höllin
Blítt og létt hópurinn í Höllinni. Húsið opnar kl. 20.30 og skemmtikvöldið hefst kl. 21.30. Miðaverð er 1.000 kr. Opið á Háaloftinu á eftir.
Sunnudaginn 11. janúar
Kl. 14 | �?rettándagleðimessa í Stafkirkjunni. Séra Kristján Björnsson.
Eldheimar opnir alla helgina frá 13-17, hefðbundinn opnunartími í Sagn- og Sæheimum.
Bregðist veðrið á föstudeginum færist gangan yfir á laugardag.