Allar greinar sjávarútvegs í Eyjum líða fyrir ónægar samgöngur
�??Í morgun komu hagsmunaðilar í matvælavinnslu í Vestmanneyjum saman til að ræða stöðu tengdra greina í Vestmannaeyjum með tilliti til samgangna og flutninga. Á fundinum staðfestist að allar greinar sjávarútvegs í Vestmannaeyjum líða nú fyrir ónægar samgöngur. Álagið á samgöngutækið er slíkt að þær fáu ferðir sem farnar eru á hverjum degi duga hvergi til að anna ferðaþjónustu, hvað þá sjávarútvegi eða almennum íbúum,�?? segir í tilkynningu sem Elliði Vignisson, bæjarjstóri sendi frá sér.
�??Á meðan tapast tækifæri, hráefni skemmist og fyrirtæki víða um land verða fyrir miklum skaða þar sem illa gengur að vinna verðmæti úr því sjávarfangi sem flytja þarf með Herjólfi.
Vestmannaeyjar eru ein stærsta verstöð á landinu og vinsæll áfangstaður ferðamanna. Samfélagið hér hefur alla burði til að halda áfram að dafna og leggja samfélaginu öllu til verðmæti til samneyslu. �?að er þó háð því að ekki verði látið undir hælinn leggjast að tryggja þá undirstöðu sem fólgin er í samgöngum.
Á fundinum var ákveðið að senda erindi á þá ráðherra sem með þessi mál fara og krefjast þess að tafarlaust verði ferðum Herjólfs fjölgað úr 6 í 8 alla daga í sumaráætlun auk þess sem farnar verði amk. 5 til 6 næturferðir þegar siglt verður í �?orlákshöfn í haust,�?? segir Elliði.
Meðfylgjandi er ályktunin undirrituð af þessum hagsmunaaðilum.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.