Fundurinn í Eldheimum á laugardaginn var mjög góður og málefnalegur. Fulltrúar stýrihópsins og bæjarfulltrúar komu hugmyndum sínum á framfæri og svöruðu spurningum úr sal sem voru málefnalegar. Stýrihópurinn starfar eftir viljayfirlýsingu sem Jón Gunnarsson samgönguráðherra og Elliði skrifuðu undir í lok október. Markmiðin eru allt að átta ferðir á dag þegar siglt í Landeyjahöfn, að núverandi Herjólfur verði til reiðu sem varaskip eftir að ný ferja kemur og sama gjaldskrá gildi í Landeyjahöfn og �?orlákshöfn. Að núverandi fjárveiting til reksturs Herjólfs, sem er um 760 milljónir verði lögð til grundvallar nýs samnings. �?annig verði möguleg hagræðing nýtt til að bæta samgöngur á milli lands og Eyja.
Líka að fram fari þarfagreining sem taki mið af þörfum samfélagins en ekki eingöngu hámarksnýtingu. �?etta sé almannaþjónusta og ekki hagnaðardrifin. Lögð var áhersla á að bæjarsjóður verður ekki í ábyrgð fyrir rekstrinum. Er hugmyndin að stofna ohf-félag sem getur séð um allan rekstur og umsjón. �?að gæti líka boðið rekstur skipsins út en haft stjórn að þjónustuþættinum.
Hugmyndir eru um íbúapassa fyrir Eyjafólk sem nyti þá sérstakra kjara. Líka að þreföld áhöfn yrði á skipinu en í dag er hún tvöföld. �?á er Háskólinn á Akureyri að vinna þarfagreiningu. En enn er ekkert fast í hendi og framhaldið ræðst af afstöðu nýrrar ríkisstjórnar. Líka sögðu þeir að samstaða meðal Eyjafólks skipti máli.
Eigum að upplýsa
�??�?g var ánægður að fundurinn var haldinn og hvað margir mættu. Eitt af hlutverkum okkar bæjarfulltrúa er að upplýsa bæjarbúa sem mest og best um þetta mikilvæga verkefni. Verkefni sem skiptir okkur öll svo miklu máli,�?? sagði Stefán Jónasson.
�??Við sem bæjarfulltrúar þurfum að upplýsa bæjarbúa sem mest í þessu máli og ég held að það hafi tekist mjög vel. �?að sem við höfum í höndunum er viljayfirlýsing en enn er ekkert frágengið. Krafan er fleiri ferðir og þessum hugmyndum er áætlað að skipið sigli 18 til 20 klukkutíma á sólarhring. Í viljayfirlýsingunni samþykkir ríkið það. Bæjarbúar hafa haft miklar skoðanir á því að sama verð eigi að vera í Landeyjahöfn og �?orlákshöfn. �?að er líka í viljayfirlýsingunni. Einnig að núverandi Herjólfur verði til taks í tvö og hálft ár.�??
Stefán lagði áherslu á að bæjarstjórn standi fast á því að bæjarsjóður verði í ekki ábyrgð á rekstrinum og að ekki verði gefið eftir af hafnargjöldum. Stofnað verður ohf. félag um reksturinn og eins og ég sagði á fundinum verða haldnir aðalfundir þar sem allt verður uppi á borðum.�??
Stefán segir að spurningar úr sal vera almennar og á sömum nótum og þeir hafi unnið eftir. �??�?að var spurt um íbúakosningu og ég tel það ekki útilokað en fyrst verðum við að sjá samninginn en takmarkið er 2920 ferðir á ári án tillit til veðurs,�?? sagði Stefán.
Hagsmunir samfélagsins ráði
�??�?að er óeðlilegt að mati bæjarstjórnar að slík þjónusta sem ferjusiglingar eru grundvallist af arðsemiskröfu fyrirtækis sem skráð er í kauphöll. Eðli málsins samkvæmt fara hagsmunir samfélagsins og slíks fyrirtækis ekki saman. Í því felst ekki gagnrýni á núverandi rekstraraðila aðeins ábending á það að arðsemisdrifinn fyrirtækjarekstur hentar ekki við rekstur verkefna þar sem almannaþjónustusjónarmið eiga að vera ráðandi,�?? sagði Lúðvík Bergvinsson.
Hann sagði að í viljayfirlýsingunni komi fram að markmiðið er að Vestmannaeyjabær taki rekstur Herjólfs yfir þegar ný ferja kemur. �??Fellst ríkið í reynd á þessi sjónarmið bæjarstjórnar. �?ar kemur fram að ferjusiglingar Herjólfs séu og eigi að skilgreina sem almannaþjónustu. �?ar kemur einnig fram að stefnt skuli að því að ferjan sigli átta ferðir á dag milli lands og Eyja �?? en í því felst að gert er ráð fyrir að ferjan sigli u.þ.b. 16-20 klukkustundir á sólarhring, hvort sem hún siglir í Landeyjahöfn eða �?orlákshöfn. �?að er eina leiðin til þess að mögulegt sé að koma til móts við það þjónustustig sem krafa er uppi um að verði til staðar, þ.e. að fólk geti komið og farið til og frá Eyjum sem mest þegar því hentar. �?etta er sú krafa sem bæjarstjórn er með varðandi þjónustustig ferjusiglinga Herjólfs.�??
Lúðvík sagði að enn hefðu engir samningar verið kláraðir. �??�?ær viðræður eru að hefjast þessa dagana. Við gerum ekki ráð fyrir öðru en að ný ríkisstjórn fylgi þeirri sömu stefnu sem mörkuð var með undirritun viljayfirlýsingarinnar af núverandi ríkisstjórn. �?að var því afar mikilvægt fyrir starfshópinn, og reyndar bæjarstjórn, að halda umræddan upplýsingafund og eiga þar hið góða samtal við bæjarbúa sem fór fram.
Á fundinum komu fram margvísleg sjónarmið frá bæjarbúum sem taka verður tillit til í væntanlegum viðræðum við ríkið um framtíð ferjusiglinga Herjólfs og skipulag þeirra. Sjálfum þótti mér fundurinn afar góður. �?að var sérstaklega ánægjulegt að heyra þann mikla samhljóm og ánægju sem fram kom í orðum fundargesta varðandi þær hugmyndir og þá hugmyndafræði sem bærinn hefur talað fyrir í viðræðum sínum við ríkið varðandi framtíð ferjusiglinga. �?að er því óhætt að segja að fundurinn hafi gefið starfshópnum og bæjarstjórn þann styrk og kraft sem leitað var eftir og þarf til að takast á við komandi viðræður við ríkið um framtíð ferjusiglinga Herjólfs.�??
Einbeittur vilji ráðherra
Elliði sagði að enn væri langt í land en í viljayfirlýsingunni komi fram einbeittur vilji hjá núverandi ráðherra til að af þessu verði og ástæða til að hrósa bæði honum og öðrum þingmönnum og ráðherrum sem að þessu hafa komið. �??Án pólitískrar forystu hefði þetta mál aldrei byrjað og án hennar verður því ekki lokið. Við vinnum út frá því að ferðum verði fjölgað mikið og í stað þess að vera sífellt á öskrinu eftir einhverju sem kallað er �??aukaferðir�?? þá verði skipið einfaldlega látið ganga og þjóðveginum haldið opnum svo mikið sem mögulegt er.
�?að þarf að okkar mati nýja hugsun og nýja skilgreiningu á öllu sem snýr að samgöngum á sjó og í fyrsta skipti finnst okkur sem eitthvað sé að rofa til. Við höfum nú bæði eyru og athygli þeirra sem þessu ráða og það viljum við nýta okkur.�??
Elliði sagði að á fundinum hefði komið fram hversu langþreytt fólk er orðið á stöðunni og þeir hefðu fullan skilning á því. Fyrst hafi verið beðið eftir Landeyjahöfn og síðan eftir bótum á stöðunni hvað hana varðar. �??Ferðir eru of fáar, þjónustan of lítil, skipið er gamalt, bilað og óheppilegt, höfnin glímir við mikinn vanda, fargjöld eru of há og lengi má áfram telja. Oft fer það síðan svo að fólk fer að takast á um vandann innbyrðis þótt allir séu í raun sammála. Slíkt sundrar þegar þörf er á samstöðu og veldur ómældum skaða. Besta leiðin til að vinna málið áfram er að miðla upplýsingum og það tel ég að vel hafi tekist á þessum fundi.�??
Elliði sagði að vel hefði tekist um val á mönnum í stýrihópinn. �??�?egar kemur að málum sem þessum verðum við að reiða okkur á sérfróða aðila. �?annig höfum við ekki haft neinar persónulegar skoðanir því hvernig eigi að leysa vanda Landeyjahafnar. Við viljum bara að allt verði gert svo fljótt sem verða má. Sérfróðir aðilar verða síðan að finna hvernig vandinn verði leystur. Á sama hátt hafa bæjarfulltrúar ekki sérstaka persónulega skoðun á því hvernig staðið verði að yfirtöku á Herjólfi. �?eir vilja bara að þetta verði vel gert og hámarksþjónusta veitt án þess að það valdi kostnaði fyrir Vestmannaeyjabæ,�?? sagði Elliði sem vonast til að málinu ljúki sem fyrst.
�??�?g vil að lokum skora á íbúa að gefast ekki upp. Við erum öll orðin þreytt á ástandinu en einmitt þá reynir á dug okkar. Nú er staðan sú að það er koma nýtt skip auk þess sem miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í Landeyjahöfn svo sem með nýjum dælubúnaði, breytingu á núverandi ytrigörðum, breytingum á viðlegukannti, tilfærslu á inngarði og margt fl. Við vitum að það verkefni að laga Landeyjahöfn verður ekki leyst í eitt skipti fyrir öll núna en höfum samt kjark til að skrefa okkur áfram í átt að betri árangri í stað þess að standa kyrr og kvarta. �?að hefur aldrei skilað árangri fyrir Vestmannaeyjar.�??