Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Yngstu nemendum verður boðið á námskeið.

Vestmannaeyjabær setti á laggirnar sundnámskeið fyrir börn í 1. -4. bekk vegna lokunar á sundlauginni í vetur. Viðgerðir á sundlaugunni drógust og stóð lokunin yfir í nokkra mánuði. Af þeim sökum hafa grunnskólanemendur ekki getað stundað hefðbundið skólasund í vetur. Skráningin á námskeiðið gengur vel og eru hátt í hundrað börn skráð. 

Fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar að rúmlega 95 börn á aldrinum 6-10 ára eru skráð á námskeiðið sem telst afar góð þátttaka og sýnir mikinn áhuga barna og forráðamanna.

Námskeiðið hefst strax að loknu páskaleyfi og mun standa yfir í nokkrar vikur. Stefnt er að því að hvert barn fái sex skipti með sundkennara á meðan á námskeiðinu stendur. Sundkennari verður Svanhildur Eiríksdóttir sem hefur mikla reynslu af sundkennslu ungra barna.

Forráðamenn munu fá tölvupóst á allra næstu dögum með nánari upplýsingum um hópaskiptingu og tímasetningar.

Nýjustu fréttir

Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.