ÍBV og Grótta eigast við í Íþróttahöllinni í kvöld klukkan 19:30. Um er að ræða oddaleik í fyrstu umferð úrslitakeppni N1 deildar kvenna og kemst sigurliðið í undanúrslit Íslandsmótsins. Það er því mikið í húfi en leikmenn og forráðamenn ÍBV hafa óskað eftir stuðningi Eyjamanna í leiknum mikilvæga og má því reikna með góðri stemmningu á pöllunum.