Alltaf von og því má aldrei gleyma
Í kvöld, þriðjudaginn 11. febrúar verður opinn borgarafundur um áfengis- og vímuefnavandann í Safnaðarheimilinu og hefst hann kl. 20.00. Á fundinum, sem sagður er verða í tónum og tali, tala �?órarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Rúnar Freyr Gísla og fleiri. Að loknum erindum verður gestum boðið að tjá sig og spyrja spurninga og í boði eru skemmtiatriði og veitingar. Allir eru velkomnir og frítt er inn. Tilgangurinn er m.a. að efla tengsl SÁÁ við landsbyggðina og kynna það sem samtökin hafa upp á að bjóða. Fundurinn í Eyjum er sá fjórði í funda-röðinni og hafa þeir gengið vel að sögn Rúnars Freys sem er samskiptafulltrúi SÁÁ sem er með umfangsmikla starfsemi.
�??Auk þess að reka sjúkrahúsið Vog í Reykjavík eru samtökin með meðferðarstöð fyrir karla á Staðarfelli og í Vík fyrir konurnar,�?? segir Rúnar Freyr þegar hann er spurður um umfangið. �??Við gerum líka mikið af því að virkja fólk eftir að meðferð lýkur með alls konar félagsstarfi og þetta allt ætlum við að kynna á fundinum hjá ykkur á þriðjudaginn.�??
Efla tengslin við landsbyggðina
Áður hefur SÁÁ haldið fundi á Ísafirði, Egilsstöðum og Reyðarfirði. �??Með þessu erum við að efla tengslin við landsbyggðina og viljum vekja athygli á að þetta er ekki lokaður klúbbur í Reykjavík. �??�?etta eru opnir fundir þar sem allir, ekki bara alkóhólistar, eru boðnir velkomnir. Við viljum líka sjá fólk sem kemur að þessum sjúkdómi í sínu starfi, heilbrigðisstéttir, kennara og lögreglu,�?? segir Rúnar Freyr og lofar skemmtilegum og ekki síst athyglisverðum fyrirlestrum.
�??Á eftir heyrum við reynslusögur fólks sem háð hefur sína baráttu við þann sjúkdóm sem alkóhólisminn er. Í lokin er aldrei að vita nema einhver bregði sér á bak við píanó eða selló og það verður enginn svikinn af stemmningunni sem þá verður. �?að hefur sýnt sig á hinum stöðunum þar sem fólk hefur verið mjög ánægt með þetta framtak okkar.�??
Ekki AA fundur
Rúnar Freyr segir að með þessu sé undirstrikað að þetta sé ekki AA fundur heldur opin samkoma þar sem rætt verður um alkóhólisma í víðu samhengi. �??Við stefnum líka að því að hitta bæjarstjórn til að efla samstarfið og kynna það sem við bjóðum. �?að eru námskeið alls konar og SÁÁ er líka alltaf til staðar þegar með þarf.�??
Rúnar Freyr bendir á að allir hafi kynnst alkóhólisma í einhverri mynd, annað hvort sem sjúklingar eða aðstandendur. �??�?að þekkja allir einhvern sem hefur orðið sjúkdómnum að bráð og alkóhólistinn hefur áhrif á allt sitt umhverfi, á maka og börn, foreldra, ömmur og afa, vini og ættingja og á vinnustað. Hvað er alkóhólismi? Við því er ekkert eitt svar en aðstandendur hafa sagt við okkur eftir fundina að þeir skilji betur við hvað er að eiga. �?að er einmitt tilgangurinn með örlítilli skemmtun í bland. Gleymum ekki að þó útlitið sé ekki gott í augnablikinu er alltaf von, því má aldrei gleyma.�??

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.