Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
mynd/samgöngustofa

Sunnudaginn 18. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður til þessarar athafnar í sjöunda sinn og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Þóranna M. Sigurbergsdóttirmun segja sögu sína í athöfnini, en hún missti son sinn, Sigurjón Steingrímsson, aðeins 17 ára gamlan í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni árið 1996.  Sigurjón hefði orðið 40 ára þennan dag, 18. nóvember.

Í ár munum við leggja áherslu á aðstandendur og þau miklu áhrif sem slys hafa á þá. Um það bil 4.000 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Enn fleiri þurfa að takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af völdum þessa. Segja má að allir upplifi með einum eða öðrum hætti afleiðingar umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni.

Minningarathöfn
Athöfn verður við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík sem hefst klukkan 11. Allir eru hvattir til að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber í umferðinni. Dagurinn er ekki aðeins tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur skapast sú venja hér á landi að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Eru þessum starfsstéttum færðar þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra. Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.

DAGSKRÁ:
15:45 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
16:00 Stjórnandi athafnarinnar setur samkomuna.
16:05 Samgöngu – og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
16:15 Mínútu þögn.
16:16 Þóranna M. Sigurbergsdóttir segir sögu sína en hún missti son sinn, Sigurjón Steingrímsson, aðeins 17 ára gamlan í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni árið 1996. Sigurjón hefði orðið 40 ára þennan dag, 18. nóvember.
16:26 – 16:30 Stjórnandi segir athöfninni formlega lokið.

Nýjustu fréttir

Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Bongóblíða í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.