Nú styttist í áramótin og er það hefðin hjá mörgum að strengja svokölluð áramótaheit. �?að eru ekki margir sem vita að áramótaheit eru talin ámóta gömul aldamótunum, en fyrir 4000 árum virtist fólk ekki hafa haft jafnmiklar áhyggjur af holdafari sínu eða reykingum eins og nú á tímum, því algengasta áramótaheitið var á þeim tíma að skila verkfærunum sem tekin höfðu verið í láni hjá nárgrönnunum á árinu.
Áramótaheit snúast flest um það að bæta sig á einhvern hátt eða ná einhverjum árangri sem hefur ekki náðst fyrr. Áramótin verða því að ákveðnum vendipunkti, núna ertu komin á leiðarenda og ný byrjun er handan við hornið, hvernig ætlar þú að hafa nýja árið?
Nú á dögum fjalla mörg áramótaheitin um mat, áfengi, sígarettur og sparnað. Desember er sá mánuður þar sem neysla okkar fer yfir öll mörk, og stundum verður neyslan það sýnileg að við viljum breyta henni. �?að er kannski það besta við áramótaheitin, við finnum einhverja þörf til að bæta okkur sjálf. Viljinn er nefnilega það sem þarf til breytinga, en meira þarf til. �?að er jú pínu erfitt að kenna gömlum hundi að sitja.
Hvað þarf til að standa við áramótaheitið?
�?að þarf því að spá aðeins í áramótaheitunum sínum og undirbúa sig. Áramótaheit eiga til dæmis ekki að vera skyndiákvörðun. �?að þarf að undirbúa áramótaheitið fyrir allskyns mótlæti. Einnig er sniðugt að gera áramótaheitið opinbert, tilkynna það á gamlárskvöldi til dæmis. �?að er nefnilega mikilvægt að hafa stuðning fjölskyldu og vina í því að venja sig af einhverjum óvana. Passaðu þig samt að setja ekki markið of hátt. Raunsæið skiptir máli. �?ú getur ekki ætlast til að breytast á mánuði. �?á er því gott að hafa einhverja áætlun um það hvernig þú ætlar að ná áramótaheitinu sem þú settir þér.
Hafðu áramótaheitið þitt nákvæmt, þú verður að geta mælt árangurinn þinn, annars gefstu upp á miðri leið. Segjum sem svo að þú viljir taka þig á og verða betri manneskja. Hvernig ætlaru að mæla það ? við getum gert það með því til dæmis að æsa okkur ekki við maka þótt hann skilji jakkann eftir á stólbakinu, þegar hann veit að það er skápur í forstofunni fyrir hann, eða vera dugleg að heimsækja ömmu og afa, leika við börnin eða hvaðeina sem þér dettur í hug. Með því að búta heitið niður í mælanlegar einingar þá sérðu það betur hvort þú sért að standa við það eða ekki. �?að er líka alltaf gott að skrá niður árangurinn. �?ví ef illa gengur er gott að geta lesið yfir það sem þú hefur áorkað. Ef markmiðið er að léttast þá er gott að vigta sig og mæla á mánaðar fresti og skrifa það niður í glósubók, þá sérðu það svart á hvítu að þú sért að léttast.
Enginn skylda
�?að er enginn skylda að setja sér áramótaheit og mörgum finnst það tilgangslaust og kalla bara aðeins á vansæld yfir því að mistakast, en þetta er bara allt spurning hvernig þú lítur á hlutina. Er eitthvað í fari þínu eða þínum venjum sem þig mislíkar? Ef svo er þá eru áramótin kjörið tækifæri til að breyta því, og þá meina ég raunverulega að breyta því. Ekki bara segja það í huganum �??jááh ég þyrftu mögulega að hætta reykja.�?? Ekki gera þetta svona, ef þér er alvara við það að hætta reykja settu saman plan til þess og fáðu hjálp ef til þess þarf. Skrifaðu heitið þitt niður og ákveddu það hvernig þú ætlar að tækla þetta. Notastu við punktana sem ég nefndi hér að ofan og breyttu því sem þér finnst þurfa breytast. �?að er aldrei of seint.
Sára �?sk Káradóttir