Árið byrjar með ágætum
sjomadur_bergey_opf_22
Trollið tekið inn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam tæplega 31 milljarði króna í janúar samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í gærmorgun. Greint er frá þessu í Radarnum í dag.

Það er um 24% aukning í krónum talið frá janúar í fyrra. Aukningin er nokkuð meiri í erlendri mynt, eða rúm 28%, þar sem gengi krónunnar var að jafnaði tæplega 4% sterkara nú í janúar en í sama mánuði í fyrra. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá útflutningsverðmæti sjávarafurða í janúarmánuði allt frá árinu 2002 á föstu gengi, en hér ber að halda til haga að tölurnar hafa ekki verið leiðréttar fyrir breytingum á verðlagi. Hvað sem því líður er óhætt að segja miðað við þessar tölur að árið 2024 byrji með ágætum í íslenskum sjávarútvegi.

Munar mest um fiskimjöl

Í ofangreindri aukningu munar mest um fiskimjöl. Útflutningsverðmæti þess nam um 4,0 milljörðum króna, sem er ríflega þreföldun frá janúar í fyrra á föstu gengi. Eins var veruleg aukning í útflutningsverðmæti lýsis, eða rúm tvöföldun á milli ára. Útflutningsverðmæti þess nam tæplega 1,7 milljörðum króna nú í janúar, en því er slegið saman með útflutningsverðmæti fiskimjöls á myndinni hér fyrir neðan.

Næst mest munar um fryst flök en þau voru jafnframt fyrirferðamest af einstaka vinnsluflokkum í mánuðinum. Útflutningsverðmæti þeirra nam 9,1 milljarði króna í janúar, sem er um 23% aukning frá sama mánuði í fyrra á föstu gengi. Útflutningsverðmæti ferskra afurða nam um 8,8 milljörðum króna og jókst um 14% á milli ára. Útflutningsverðmæti á frystum heilum fiski var um 2,5 milljarðar króna og jókst um 52% á milli ára. Útflutningsverðmæti flokksins „annarra sjávarafurða“ nam svo um 2,2 milljörðum króna og stóð svo til í stað á milli ára, en þar undir teljast meðal annars loðnuhrogn.

Samdráttur er í tveimur flokkum, það er söltuðum og þurrkuðum afurðum og svo rækju. Útflutningsverðmæti saltaðra og þurrkaðra afurða nam rúmlega 2,1 milljarði króna í janúar og dróst saman um 22% á milli ára á föstu gengi. Útflutningsverðmæti rækju nam rúmlega 400 milljónum króna og dróst saman um 13% á milli ára. Þar sem um fyrstu bráðabirgðatölur Hagstofunnar er að ræða liggur ekki fyrir sundurliðun niður á fisktegundir. Þær upplýsingar munu liggja fyrir í lok febrúar þegar Hagstofan birtir ítarlegri upplýsingar um útflutning í janúar.

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.