Sigurjón Óskarsson bjargaði fjórum áhöfnum á ferli sínum sem skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE 401.
Þann 14. febrúar 1974 sökk togarinn Bylgjan RE frá Reykjavík (hét áður Jón Þorláksson). Skipið hafði verið að loðnuveiðum við Suðurströndina en sökk 8 sjómílur suðaustur af Hjörleifshöfða. Áhöfnin á Þórunni Sveinsdóttur VE 401 bjargaði 11 mönnum, en einn maður komst ekki í gúmmíbjörgunarbát og drukknaði.
Þann 18. janúar 1981 strandaði Katrín VE 47 á Skeiðarársandi í Meðallandsbugt. Hluta áhafnar Katrínar var bjargað í land, en Sigurjón og áhöfn hans á Þórunni Sveinsdóttur VE náðu Katrínu á flot við mjög erfiðar aðstæður og björguðu þar með skipinu ásamt þeim mönnum sem eftir voru um borð. Norðan hvassviðri var og töluvert brim þegar þessi björgun átti sér stað og þótti þetta mikið afrek Sigurjóns og áhafnar hans við erfiðar aðstæður.
Þann 24. maí 1982 varð eldur laus í Jóhönnu Magnúsdóttur RE 74 á humarveiðum í Skeiðarárdýpi. Urðu skipverjar að fara í gúmmíbjörgunarbát í austan sex til sjö vindstigum og talsverðum sjó. Um klukkustund eftir að þeir yfirgáfu bátinn var Þórunn Sveinsdóttir komin á staðinn, bjargaði áhöfninni og sigldi með hana til Vestmannaeyja.

Þann 7. mars 1989 var vélbáturinn Nanna VE 294 að togveiðum skammt suður undan Reynisdröngum við Vík í Mýrdal í slæmu veðri. Sjór komst inn um toglúgur aftan á skipinu með þeim afleiðingum að sjö skipverjar, sem á skipinu voru, komust í gúmmíbjörgunarbát. Skipstjóri gat sent út neyðarkall og klukkustund síðar var Þórunn Sveinsdóttir VE 401 komin á staðinn, bjargaði áhöfninni og sigldi með hana til Vestmannaeyja. Skipstjóri á Nönnu VE 294 var Leó Óskarsson, bróðir Sigurjóns.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.