Þarf allt að vera neikvætt, illa gert, leiðinlegt og ömurlegt til að teljast fréttnæmt. Þarf fókusinn að vera á hið neikvæða til að teljast til vinsælda. Erum við komin þangað, ein hamingjusamasta þjóð í heimi? Eða er málið að einblína á það sem jákvætt er, það sem vel hefur verið gert og byggja ofan á það. Að sjá styrkleikana í nýju fólki með ferska sýn og fagna þeim tækifærum sem þau færa að borðinu. Er það ekki mun vænlegra til árangurs og meiri velsældar okkur öllum til handa?
Stundum leiðir lífið mann á ókunnar slóðir, slóðir sem jafnvel geta reynst erfiðar og ógnvekjandi, en jafnframt spennandi og fullar af áskorunum. Það eru allir einhvern tímann að feta slóðina í fyrsta skipti, í hvaða starfi sem er. Það þarf hugrekki að breyta til og eitthvað af heppni í bland til að vel fari. Seigla nefnilega lærist, hún er ekki bara meðfædd. Er ekki málið að vera óhrædd, þakka innilega fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt af Eyjalistanum, stjórn hans og flokkmönnum og stökkva í djúpu laugina. Ég er nefnilega ágætlega synd skal ég ykkur segja.
Nú erum við fjölmörg sem erum að stíga okkar fyrstu skref í bæjarpólitíkinni í þeim flokkum sem bjóða fram í næstu bæjarstjórnarkosningum. Margir vöruðu mig við, aðrir hvöttu mig en allir hafa verið jákvæðir, því hvað getur mögulega verið ómögulegt við að fá nýtt fólk til starfa, fólk með nýjar ferskar hugmyndir, fólk með mikla reynslu á mismunandi sviðum, fólk sem er tilbúið að vinna fyrir bæjarfélagið sitt af heilindum og hefur áhuga á að hlusta og þjóna bæjarbúum sem allra best.
Án efa brenna stóru málin á öllum frambjóðendum. Samgöngumálin skipta alla máli, það vitum við. Menntamálin eru og verða mér ávallt hugleikin, öldrunarmál skipta mig persónulega miklu máli, umhverfis- og skipulagsmál eru sérstakt áhugamál hjá mér og ferðamálin skipta sífellt meira máli. En svo eru önnur mál eins og móttaka nýrra íbúa, starfsendurhæfingarstöð, framtíðarsýn bókasafnsins og íþróttamannvirkjanna, bygging nýs leikskóla, nýtt húsnæði fyrir félagsaðstöðuna, að merkja betur gönguleiðir, svo yfir í minni málin eins og ljósastauralýsinguna, snjómokstur á gangstéttum og svo mætti lengi telja. Málið er að láta öll málefni sig varða og vinna að þeim stóru sem þeim smáu af sömu heilindum og láta sig velferð allra máli skipta.
Framundan er drengileg og spennandi kosningabarátta af okkar hálfu, þar sem við viljum fara fram með jákvæðni að leiðarljósi. Við viljum fara í málefnin en ekki mennina, við viljum öll vel og áttum okkur á að sterk liðsheild að loknum kosningum er það sem þarf til að reka gott velferðar samfélag í eyjum.
Arndís María Kjartansdóttir, oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.