Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Elmar Erlingsson voru báðir í eldlínunni með sínum félagsliðum í þýska handboltanum í dag. Elliði Snær og félagar hans í Gummersbach unnu Bergischer á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni, 39-30. Elliði Snær skoraði þrjú mörk. Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig. Bergischer er með 14 stig í fimmtánda […]

Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins

DSC_5708

Árleg páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmanneyjum fer fram nk. laugardag 4. apríl. Eins og venjulega fer leitin fram á Skansinum og hefst stundvíslega kl. 15:00. Leitinni verður startað formlega á staðnum kl. 15 en allir eiga að bíða við virkið á Skansinum þar til leitinni verður startað af Eyþóri Harðarsyni, oddvita framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. […]

Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE

Kap VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun með um 50 tonna afla, að stærstum hluta stórþorski úr Breiðafirði. Skipið hefur verið við veiðar í Breiðafirði síðustu tvær vikur og landað afla sínum í Grundarfirði á meðan. Kristgeir Arnar Ólafsson, skipstjóri á Kap, segir tíðarfarið hafa verið erfitt en aflann engu að síður góðan. […]

Prúðmannleg pólitík

Fersk sýn Þarf allt að vera neikvætt, illa gert, leiðinlegt og ömurlegt til að teljast fréttnæmt.  Þarf fókusinn að vera á hið neikvæða til að teljast til vinsælda. Erum við komin þangað, ein hamingjusamasta þjóð í heimi?  Eða er málið að einblína á það sem jákvætt er, það sem vel hefur verið gert og byggja […]

Páskar í Landakirkju

Landakirkja TMS 20200823 194229

Í páskahelgihaldi Landakirkju núna í ár má finna bæði það sem er kunnuglegt en einnig er bryddað upp á nýjungum. Skírdagur 19:00 – Nýjung páskahelgihaldsins er að finna á skírdagskvöld. Athöfnin er tvískipt og hefst með kvöldverð í safnaðarheimilinu í anda síðustu kvöldmáltíðarinnar. Seinni hluti athafnarinnar er síðan upp í kirkju þar sem gengið verður […]

Bræður frá Úkraínu fundu ró í Vestmannaeyjum 

Bræðurnir Kostyantyn og Oleg eru fæddir og uppaldir í Úkraínu en hafa á síðustu árum byggt sér líf í Vestmannaeyjum. Í dag starfa þeir báðir hjá Skipalyftunni og hafa komið sér vel fyrir í Eyjum, þó hugurinn leiti reglulega til heimalandsins þar sem foreldrar þeirra búa.   Kostyantyn flutti til Eyja árið 2009 og yngri bróðir hans Oleg fylgdi svo í kjölfarið 2016. Þeir upplifðu því stríðið í heimalandinu ekki á […]

Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar

Óskar á Leó VE var aflakóngur í Vestmannaeyjum þrjár vertíðir: árið 1965 með 1.050 tonn, 1966 með 763 tonn og 1970 með 1.281 tonn. Keppti hann þá við Hilmar Rósmundsson á Sæbjörgu VE, sem var aflakóngur árin 1967, 1968 og 1969, þegar hann fiskaði 1.654 tonn á vertíðinni, sem var met. Sigurjón Óskarsson, sonur hans, […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.