Páskar í Landakirkju
Landakirkja TMS 20200823 194229
Landakirkja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í páskahelgihaldi Landakirkju núna í ár má finna bæði það sem er kunnuglegt en einnig er bryddað upp á nýjungum.

Skírdagur
19:00 – Nýjung páskahelgihaldsins er að finna á skírdagskvöld. Athöfnin er tvískipt og hefst með kvöldverð í safnaðarheimilinu í anda síðustu kvöldmáltíðarinnar. Seinni hluti athafnarinnar er síðan upp í kirkju þar sem gengið verður til altaris eins og hefð er fyrir á skírdagskvöld. Í lok athafnarinnar er altarið síðan afskrýtt sem myndlæg niðurlæging Krists.

Föstudagurinn langi
11:00 – Lestur píslarsögunnar er fastur liður í helgihaldi föstudagsins langa og er engin breyting á því núna í ár.

Páskadagur
6:27 – Undanfarin ár hefur sr. Viðar lagt leið sína í Stórhöfða til að fagna sólarupprásinni sem markar jafnframt upphaf páskahátíðarinnar. Öllum er að sjálfsögðu velkomið að koma með en sífellt fjölgar í hópi þeirra sem leggja leið sína suður á Eyju. Í ár er sólris kl. 6:27 og því æskilegt að mæta örlítið fyrr til að mæta fyrstu geislum sólar. Við vonum að veður og skyggni verði gott.
8:00 – Hátíðarguðsþjónusta í Landakirkju þar sem upprisu Krists er fagnað. Að lokinni messu er boðið upp á morgunverð í boði sóknarnefndar í safnaðarheimilinu.
10:30 – Páskahelgihaldið endar síðan á hátíðarguðsþjónustu á Hraunbúðum.

Í öllum athöfnum syngur Kór Landakirkju og Kitty stjórnar.
Sjáumst í kirkjunni okkar um páskana. Gleðilega páska!

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.