Arnar Pétursson hættir sem þjálfari karlaliðs ÍBV í handbolta. �?etta kemur fram á Handbolti.org en Arnar tók við ÍBV liðinu fyrir tímabilið 2010-2011 og stýrði svo liðinu upp í úrvalsdeild þremur árum síðar með Erlingi Richardssyni. Í vetur hefur hann svo starfað með Gunnari Magnússyni en í fréttinni segir jafnframt að Arnar taki svo við sem formaður handknattleiksstjórnar ÍBV.
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta eru viðræður hafnar við Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfara kvennaliðs Fram um að koma til Eyja næsta vetur en Halldór Jóhann sást m.a. fylgjast með leik ÍR og ÍBV síðasta fimmtudag.