Árni Friðriks­son fer til loðnu­mæl­inga nk. mánu­dag

Sam­komu­lag hef­ur náðst um að út­gerðir upp­sjáv­ar­skipa leggi Haf­rann­sókna­stofn­un lið við loðnu­leit og mæl­ing­ar í vet­ur. Leggja þær til tvö skip sem munu leita með rann­sókn­ar­skipi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Stofn­un­in greiðir um helm­ing kostnaðar við út­hald skip­anna, sam­tals um 30 millj­ón­ir króna.

„Mér er létt. Þetta er mjög mik­il­vægt til að reyna að ná góðri mæl­ingu. Von­andi er nóg af loðnu þannig að það verði ein­hver vertíð,“ seg­ir Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Sam­komu­lagið náðist á fundi hans með full­trú­um Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) síðdeg­is í gær. Rann­sókn­ar­skipið Árni Friðriks­son fer til loðnu­mæl­inga nk. mánu­dag, ef veður leyf­ir, ann­ars fyrsta dag sem gef­ur. Tvö skip frá út­gerðunum fara til móts við hann, að því er seg­ir í Morg­un­blaðinu í dag.

Mbl.is greindi frá

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.