„Átta landanir á síðustu níu dögum“
Bergur_landad_0823_2
Landað í Eyjum. Eyjar.net/TMS

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Systurskipið Vestmannaey VE kom þá einnig til hafnar með fullfermi en ekki var landað úr skipinu fyrr en í morgun.

Afli Bergs var mest þorskur, ufsi og ýsa en afli Vestmannaeyjar var mest þorskur og ufsi. Rætt er við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra útgerðanna á vef Síldarvinnslunnar. Þar er hann fyrst spurður hvernig aflast hefði að undanförnu.

„Það hefur fiskast afar vel upp á síðkastið og skipin hafa verið að veiða hér við bæjardyrnar. Þau voru núna síðast í Háfadýpinu. Það er virkileg vertíðarstemmning og hjá skipunum hafa verið átta landanir á síðustu níu dögum. Túrarnir taka afar stuttan tíma og því hefur verið dálítið hægt á skipunum eins og til dæmis á Vestmannaey núna. Fiskurinn sem fæst er bæði fallegur og góður. Hjá mér snýst lífið þessa dagana um að skipuleggja landanir og ráðstafa fiskinum til vinnslu. Það er nóg að gera og virkilega gaman þegar svona mikið er um að vera. Vonandi fiska skipin vel í dag því síðan spáir hann bölvaðri brælu,“ segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.