Auðmjúkur og þakklátur fyrir allt
Sr. Viðar Stefánsson hefur nú í hálft annað ár gegnt stöðu prests í Vestmannaeyjaprestakalli en hann tók til starfa 1. október 2016. Hinn 28 ára gamli Viðar, sem var á sínum tíma yngsti starfandi prestur þjóðkirkjunnar, kemur úr Gnúpverjahreppi í Árnessýslu og er í sambúð með Sóleyju Lindu Egilsdóttur frá Skálholti en hún starfar á Bókasafninu eftir að hafa lokið námi í leikhússtjórn á Englandi. Af gefnu tilefni settist blaðamaður niður með Viðari inni á skrifstofu hans í safnaðarheimilinu og fór ofan í saumana með honum á annars annasömu og viðburðaríku ári í starfi.
�??Maður er náttúrulega að koma inn í nýtt samfélag, inn í ákveðnar hefðir og siði, t.d. tengt starfinu en þetta hefur allt saman verið skemmtilegt og lærdómsríkt. �?etta var það starf sem mig langaði í og er ég feginn að hafa fengið það,�?? segir Viðar sem er þakklátur fyrir aðstöðu sína í Eyjum. �??Hér er gott að vera, við erum í góðu húsi uppi í Smáragötu sem er vel við haldið og það er alls ekki sjálfsagt í prestastéttinni, það munar heilmikið bara um það.�??
Einnig ber hann samstarfsfólki sínu í kirkjunni söguna vel og lýsir því sem fyrirmyndafólki. �??Hérna er alveg frábært samstarfsfólk, Halldór, Kitty, Guðmundur �?rn, Gísli, Goggi og allir meðhjálpararnir og sóknarnefndin. �?að er svo dýrmætt að vinna með góðu fólki, frábæru fólki, sem veit hvað það er að gera og hefur svipaða sýn og maður sjálfur á hlutina. �?etta er bara búinn að vera dásamlegur tími og mjög skemmtilegt að kynnast fólkinu hérna,�?? segir Viðar.
Geta horft heim í góðu skyggni
Aðspurður hvort hann sé að upplifa drauminn segir Viðar það ekki svo fjarri lagi. �??�?etta er náttúrulega það sem maður stefndi að og er búinn að læra fyrir. Svo er maður heldur betur ánægður með að hafa endað á þessum stað. �?að er ekki langt heim, bæði fyrir mig og Sóleyju Lindu, við getum meira að segja horft heim upp í hrepp í góðu skyggni, þannig að við erum voðalega lukkuleg, það vantar ekki.�??
Vissi ekki af hvítu tjöldunum fyrr en viku fyrir �?jóðhátíð
Er samfélagið í Vestmannaeyjum eins og þú bjóst við eða kom þér eitthvað á óvart? �??�?að er ýmislegt í samfélaginu sem maður bjóst við og svo er annað sem kom á óvart. �?að sem kom ekki á óvart er að þetta er eyjasamfélag og litast mikið af samgöngum upp á land. Svo er þetta líka sjávarpláss úti á landsbyggðinni og litast einnig af því. Fyrsta �?jóðhátíðin kom okkur Sóleyju hins vegar á óvart, það var allt annað batterí en okkur hafði dottið í hug. Við höfðum fengið sögur af því að þetta væri bara sukk og svínarí, sögur sem við heyrðum gjarnan frá jafnöldrum okkar. En svo kom maður á �?jóðhátíð og var hluti af teyminu sem setti hana og þá sá maður að þetta er fjölskylduhátíð. Fyrir mitt leyti vissi ég t.d. ekkert af hvítu tjöldunum inni í Herjólfsdal fyrr en viku fyrir hátíðina. �?að kom líka á óvart að það er alltaf einhver viðburður hérna, alltaf eitthvað í gangi, Eyjakvöld, sýningar, Goslokahátíð, íþróttamót hjá krökkunum og fleira. �?etta er dæmi um það sem kom okkur skemmtilega á óvart.�??
Eins og fyrr segir var Viðar yngsti starfandi presturinn á Íslandi en nú hefur orðið breyting á því. �??�?að er búið að slá metið,�?? segir Viðar og hlær. �??�?að var ung kona sem var vígð núna rétt fyrir jól til Vopnafjarðar, hún er einhverjum tveimur mánuðum yngri en ég er.�??
Ánægður með sinn makker
�?egar Viðar lítur til baka finnst honum starfið hafa gengið ágætlega og að almennt séð sé fólk mjög ánægt með störf þeirra prestanna tveggja. �??�?að hefur sannarlega hjálpað að Vestmannaeyingum finnist þeir hafa bestu prestana á landinu, bara það viðhorf hefur hjálpað mikið,�?? segir Viðar og hlær. �??Svo finnur maður það líka þegar vaktsíminn hringir að það skiptir litlu sem engu máli hvor okkar er á vakt, það er ekki oft sem það er beðið sérstaklega um mig eða Guðmund �?rn. �?að á að vera þannig að það skiptir ekki máli hvor okkar kemur. T.d. þegar einhver deyr þá fer bara sá sem er á vakt, þannig að þetta hefur bara gengið vel. �?g er líka þakklátur fyrir að hafa sr. Guðmund �?rn mér við hlið og að við séum sameiginlegt teymi í þessu. Hann hefur kennt mér voðalega margt og við erum með svipaða sýn á hlutina að mörgu leyti. Okkar samstarf gengur vel og ég er mjög ánægður með minn makker hérna á hinum kontórnum, það er alls ekki sjálfsagt.�??
Á þessum stutta tíma sem Viðar hefur starfað sem prestur hefur hann fengist við margvísleg verkefni og því kominn með góða innistæðu í reynslubankann. �??Yfirleitt þegar nýr prestur kemur á nýjan stað, þá er honum tekið með vissri varúð en maður hefur orðið lítið var við það hér. �?að kemur einna helst fram í þessu viðhorfi sem ég nefndi áðan, að Vestmannaeyingar telji sig vera með bestu prestana á landinu. En eins og ég segi þá eru hér kjöraðstæður til að koma inn sem nýr prestur, með einhvern við hliðina á sér sem er almennilegur og auðveldlega hægt að læra af. Hann vill líka að maður komi með eitthvað sjálfur en hann er alveg tilbúinn til að aðstoða mann þegar eitthvað kemur upp á og það er virkilega dýrmætt fyrir nýjan prest.�??
Viðtalið má lesa í heild sinni í nýjasta tölublaði Eyjafrétta og í vefútgáfu blaðsins fyrir þá sem eru í áskrift.

Nýjustu fréttir

Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.