Auka eftirlit með heimagistingu
lilja_stjr
Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði í dag samning við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um aukið eftirlit með heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi. Samningurinn felur í sér 30 m.kr. viðbótarframlag til heimagistingarvaktarinnar og er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að styðja við framboðshlið húsnæðismarkaðarins á suðvesturhorni landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

„Það er mikilvægt að halda vel utan um heimagistingu og er þessi samningur liður í þeirri vegferð. Ég vænti mikils af samstarfinu við Sýslumannsembættið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Markmiðið er að hafa hvetjandi áhrif á einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína hjá sýslumanni og endurnýja skráningu árlega. Heimagisting umfram 90 daga og 2 m.kr.  flokkast sem atvinnustarfsemi og er lögð sérstök áhersla á eftirlit með gististarfsemi sem kallar á rekstrarleyfi.

Skýrari yfirsýn yfir raunverulegt umfang heimagistingar tryggir rétt skattskil einstaklinga og að lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis og starfsemin fari þar með að þeim lögum sem um hana gilda. Lagt er upp með að átaksverkefnið sé til eins árs og felur það m.a. í sér að starfsmönnum í heimagistingarvakt verði fjölgað, aukin áhersla lögð á frumkvæðiseftirlit sem og að fylgst verði með notkun skráningarnúmera í markaðssetningu.

Samningurinn er í samræmi við áherslur sem koma fram í frumvarpi sem menningar- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi.

Nánari upplýsingar um skráningu heimagistingar má finna hér.

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.