Andri og Elís Þór í lokahóp u-20 fyrir EM

Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, landsliðsþjálfarar U-20 ára landsliðs karla í handbolta, hafa valið lokahóp fyrir komandi Evrópumót sem fram fer í júlí. Eyjamennirnir Andri Erlingsson og Elís Þór Aðalsteinsson eru báðir í hópnum. Hópurinn kemur saman til æfinga núna í maí og einnig áður en haldið verður út á EM. Evrópumótið fer fram […]
Emil Gautason á skotskónum fyrir u-16 ára landslið Íslands

Eyjamaðurinn Emil Gautason og félagar hans í U-16 landslið Íslands í fótbolta léku þriðja og síðasta leik sinn á UEFA Development mótinu, gegn Írlandi í dag. Staðan var 3-3 eftir venjulegan leiktíma og fór þá fram vítaspyrnukeppni þar sem íslenska liðið tapaði, 5-4. Emil sem er leikmaður ÍBV, kom inn á 60. mínútu leiksins í […]
Besta byrjun nýliða í 15 ár

Víðir Sigurðsson hefur birt skemmtilega pistla á Facebook-síðu sinni um Bestu deild kvenna. Í færslu hans í gær, sem akureyri.net birti, fjallaði hann meðal annars um nýliða ÍBV. Nýliðar ÍBV hafa komið skemmtilega á óvart og unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni, eins og Íslandsmeistarar Breiðabliks. Þetta er besta byrjun ÍBV í fimmtán ár […]
ÍBV stelpurnar með þriðja sigurinn í röð

Kvennalið ÍBV í fótbolta vann sinn þriðja sigur í röð þegar þær unnu Val á Hlíðarenda 2-3, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í dag. Eyjastelpur byrjuðu leikinn betur og komust í 0-1 eftir um það bil tíu mínútur. Valskonur tóku þá hornspyrnu sem Olga Sevcova las og hún brunaði upp völlinn og kom boltanum […]
Milena í lokahóp u-16

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U-16 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Milenu Mihaela Patru, leikmann kvennaliðs ÍBV í fótbolta, í lokahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti í Finnlandi dagana 21.-28. maí nk. Milena, sem er sóknarmaður, hefur verið að fá tækifæri með meistaraflokki kvenna ÍBV þrátt fyrir ungan aldur ásamt því að leika með þriðja […]
ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Val, 23-25, í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild kvenna, í Eyjum í kvöld. Valskonur er því komnar í 2-0 í einvíginu og eru einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. Valskonur byrjuðu leikinn betur og náðu fjögurra marka forystu, 2-6, á upphafs mínútum fyrri hálfleiks. Valskonur voru […]
ÍBV enn án sigurs eftir tap gegn Blikum

Karlalið ÍBV í fótbolta tapaði 1-2 gegn Breiðablik í fimmtu umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og komust í 1-0 eftir aðeins fjórtán sekúndur. Þar var að verki Liam Daði Jeffs en hann setti góða pressu á Anton Ara, markvörð Breiðabliks, sem var alltof lengi að athafna sig. […]
Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði 39-33 gegn Val í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn á hlíðarenda í dag. Algjört jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan eftir stundarfjórðung 11-11. Liðin skiptust á að vera með forystuna en Eyjakonur voru sterkari á lokakafla fyrri hálfleiks og náðu þriggja marka forskoti, 17-20, […]
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri

Utanvegahlaupið The Puffin Run fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í dag. Um 700 manns tóku þátt í hlaupinu, bæði í einstaklingshlaupi og boðhlaupi. Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar í hlaupinu. Arnar Pétursson kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 1:15:10 en þetta var í fjórða skipti sem hann vinnur […]
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun

The Puffin Run verður haldið í níunda sinn á morgun. Skráðir keppendur eru 697 (plús boðhlaup) en upphaflega var búist við metþátttöku eða 1800 manns en vegna lokunar Landeyjarhafnar voru margir sem gátu ekki séð sér fært um að taka þátt. Meðal keppenda eru margir af bestu hlaupurum landsins. Rásmark er á Nausthamarsbryggju og verða […]