Ísak Rafnsson leggur skóna á hilluna
Ísak Rafnsson.

Ísak Rafnsson, leikmaður ÍBV í handbolta, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Ísak greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í gærkvöld.

Ísak hefur síðustu fjögur ár leikið með ÍBV og varð hann Íslandsmeistari með liðinu árið 2023 eftir sigur gegn Haukum í oddaleik í úrslitaeinvíginu. Hann er uppalinn í FH og lék upp alla yngri flokka félagsins sem og meistaraflokki. Hann varð Íslandsmeistari með FH árið 2011 og bikarmeistari 2018. Hann leḱ í eitt ár í Austurríki með félaginu Schwaz og lék á sínum tíma fyrir öll yngri landslið Íslands.

,,Skórnir á hilluna (staðfest). Eftir langan feril, fullt af sigrum, nokkur töp og endalaust af minningum segi ég glaður að nú sé komið gott. Er mjög þakklátur fyrir tímann sem ég átti á parketinu og stoltur af því sem ég hef afrekað,” segir Ísak í tilkynningu sinni. 

Ísak spilaði ekki mikið með ÍBV í vetur vegna meiðsla sem hann varð fyrir.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.