Karlalið ÍBV tapaði á Akureyri
Úr leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og KA mættust á Akureyri í dag í lokaleik sjöttu umferðar Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna. 

KA menn komust yfir á 17. mínútu leiksins með marki frá Hallgrími Mar Steingrímssyni. Markvörður Eyjamanna, Ari i Haraldstovu Petersen, hljóp þá út í markinu til hreinsa boltann. Boltinn datt fyrir Hallgrím Mar sem skoraði í autt markið af löngu færi og kom KA í 1-0.

Seinni hálfleikurinn bauð ekki upp á mikið og lítið um dauðafæri. Eyjamenn reyndu að sækja og sækja en lítið gekk upp. KA menn tvöfölduðu forystu sína á lokamínútu leiksins þegar það kom fyrirgjöf á nær og Felix Örn Friðriksson setti boltinn í eigið mark. Lokatölur leiksins 2-0.

Eyjamenn eru eftir sex umferðir með eitt stig í neðsta sæti deildarinnar. KA menn voru að vinna sinn annan leik í röð og eru með sjö stig í sjötta sæti.

Næsti leikur ÍBV er gegn Víkingi Reykjavík á Hásteinsvelli, sunnudaginn 17. maí kl. 16:00.

KA 2 – 0 ÍBV

1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’17)

2-0 Felix Örn Friðriksson (’90, sjálfsmark)

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.