Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Elís Þór Aðalsteinsson hlutu Fréttabikarana á lokahófi ÍBV. Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson

Handbolta menn og konur gerðu sér glaðan dag í gærkvöldi þegar lokahóf hanknattleiksdeildar ÍBV fór fram á Háaloftinu. Ólafur Jóhann Borgþórsson fór með veislustjórn og matur kvöldsins var í höndum Einsa Kalda. Þá sá Ingó Veðurguð um að skemmta seinna um kvöldið. 

Veitt voru verðlaun fyrir árangur vetrarins en það voru þau Andri Erlingsson og Sandra Erlingsdóttir sem voru valin bestu leikmenn meistaraflokkana. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Elís Þór Aðalsteinsson fengu fréttabikarana, sem efnilegustu leikmenn ÍBV. Birna Berg Haraldsdóttir og nökkvi Snær Óðinsson voru valin ÍBV-arar og Morgan Goði Garner og Ásdís Halla Hjarðar þóttu sýna mestu framfarir. Einnig voru veitt verðlaun 3. flokki karla og kvenna og venslaliði ÍBV, HBH. 

Hér að neðan má sjá verðlaunahafa og myndir frá kvöldinu sem Óskar Pétur Friðriksson tók.

3. flokkur karla:

ÍBV-ari: Benóný Þór Benónýsson

Mestu framfarir: Kári Snær Hlynsson

Efnilegastur: Anton Frans Sigurðsson

Besti leikmaðurinn: Haukur Leó Magnússon

Bergvin Haraldsson, Haukur Leó Magnússon, Kári Snær Hlynsson, Anton Frans Sigurðsson, Benóný Þór Benónýsson og Hákon Daði Styrmisson.

 

3. flokkur kvenna:

ÍBV-ari: Birna Dís Sigurðardóttir

Mestu framfarir: Lilja Kristín Svansdóttir

Efnilegust: Agnes Lilja Styrmisdóttir

Besti leikmaðurinn: Birna María Unnarsdóttir

Hilmar Ágúst Björnsson, Birna María Unnarsdóttir, Agnes Lilja Styrmisdóttir, Lilja Kristín Svansdóttir og Birna Dís Sigurðardóttir.

 

Meistaraflokkur kvenna:

ÍBV-ari: Birna Berg Haraldsdóttir

Mestu Framfarir: Ásdís Halla Hjarðar

Efnilegust: Alexandra Ósk Viktorsdóttir

Besti leikmaðurinn: Sandra Erlingsdóttir

Magnús Stefánsson, Alexandra Ósk Viktorsdóttir, Sandra Erlingsdóttir, Ásdís Halla Hjarðar, Birna Berg Haraldsdóttir og Hilmar Ágús Björnsson.

 

Meistaraflokkur karla:

ÍBV-ari: Nökkvi Snær Óðinsson

Mestu framfarir: Morgan Goði Garner 

Efnilegastur: Elís Þór Aðalsteinsson

Besti leikmaðurinn: Andri Erlingsson

Sigurður Bragason, Bergvin Haraldsson, Nökkvi Snær Óðinsson, Morgan Goði Garner, Elís Þór Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Erlingur Richardsson.

 

HBH:

Mjaldurinn: Hinrik Hugi Heiðarsson

Mestu framfarir: Einar Bent Bjarnason

Efnilegastur: Heimir Halldór Sigurjónsson

Bestur: Ívar Bessi Viðarsson

Bergvin Haraldsdóttir, Ívar Bessi Viðarsson, Hinrik Hugi Heiðarsson, Einar Bent Bjarnason, Heimir Halldór Sigurjónsson og Sigurður Bragason.

 

 

Nýjustu fréttir

Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Saman gerum við góðan bæ enn betri
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.