Valskonur urðu Íslandsmeistarar í Eyjum eftir sigur á ÍBV
Stelpurnar fengu silfurverðlaun í lok leiks. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti Val í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn í Olís deild kvenna í Eyjum í kvöld. Eyjakonur þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að halda sér í baráttunni og knýja fram oddaleik. 

Valskonur byrjuðu leikinn betur og voru yfir á upphafsmínútum fyrri hálfleiks. Eyjakonur unnu sig betur inn í leikinn og náðu tveggja marka forystu, 10-8, eftir sautján mínútur. Eyjakonur voru sterkari aðilinn út fyrri hálfleikinn og náðu mest þriggja marka forskoti. Staðan í hálfleik 16-14.

Valskonur reyndust sterkari í lokin

Valskonur komu ákveðnar til leiks í síðari hálfleik. Eftir fimmtán mínútur í síðari hálfleik voru Eyjakonur aðeins búnar að skora þrjú mörk á meðan Valskonur skoruðu átta. Valur leiddi þegar stundarfjórðungur var eftir með fjórum mörkum, 19-22. Eyjakonur minnkuðu muninn í eitt mark, 23-24, þegar átt mínútur voru til leiksloka en nær komust þær ekki. Valskonur reyndust sterkari á lokakafla leiksins og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 26-30, og tryggðu sér Íslandsmeistaratitillinn. Valskonur eru því handhafar allra þriggja titlana þetta árið, en þær urðu bikarmeistarar og deildarmeistarar fyrr í vetur. ÍBV endar tímabilið í öðru sæti í bæði úrslitakeppninni og í deildinni.

Sandra Erlingsdóttir var eins og svo oft áður frábær í liði ÍBV og var hún markahæst í leiknum með tólf mörk. Birna Berg Harladsdóttir kom næst á eftir henni með sjö mörk. Ólöf Maren Bjarnadóttir átti góðan leik og varði hún 16 skot í marki ÍBV.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 12 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 7, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Britney Emilie Florianne Cots 2.

Sigfús Gunnar Guðmundsson tók nokkrar myndir á leiknum.

 

Nýjustu fréttir

Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi
Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.