Valskonur urðu Íslandsmeistarar í Eyjum eftir sigur á ÍBV

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti Val í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn í Olís deild kvenna í Eyjum í kvöld. Eyjakonur þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að halda sér í baráttunni og knýja fram oddaleik.  Valskonur byrjuðu leikinn betur og voru yfir á upphafsmínútum fyrri hálfleiks. Eyjakonur unnu sig […]

Sjónarhorn flakkarans vígt í hrauninu við Eldfell

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra vígði í dag fyrsta áfanga Sjónarhorns flakkarans, listaverks Ólafs Elíassonar. Athöfnin fór fram við útsýnisskála sem staðsettur er í nýja hrauninu og við Eldfell sem myndaðist í eldgosinu árið 1973. Verkið samanstendur af útsýnisskálanum og göngustíg sem liggur um hraunið og umhverfis Eldfell. Frá þessu er greint í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. Auk […]

Tafir á haffærnisskírteini Herjólfs III

Unnið er áfram að því að fá haffærnisskírteini fyrir Herjólf III en ferlið hefur reynst bæði flóknara og tímafrekara en upphaflega var gert ráð fyrir. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Herjólfur III hefur legið við bryggju í um tvö ár og það hefur reynst erfiðara og tímafrekara að […]

Fjör, gleði og glæsileg skemmtun á árshátíð VSV

Á laugardaginn hélt Vinnslustöðin hf. glæsilega árshátíð í Höllinni í Vestmannaeyjum þar sem um 200 manns komu saman til að njóta kvöldsins. Frá þessu er greint á fréttasíðu fyrirtækisins. Kvöldið hófst með fordrykk á Háaloftinu áður en borðhald hófst í Höllinni. Jónsi, söngvari í Svörtum fötum, var veislustjóri kvöldsins og setti strax tóninn fyrir skemmtilega […]

Forsendur þess að fjölskyldur blómstri

Það er einfalt í grunninn. Fjölskyldur setjast að þar sem tækifæri eru til staðar, þar sem samfélagið er í sókn og þar sem daglegt líf gengur upp. Við viljum að ungt fólk sjái framtíð sína í Eyjum, geti keypt sér húsnæði, stofnað fjölskyldu og fundið öryggi í samfélaginu. Vestmannaeyjar hafa alla burði til að vera […]

Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum

Eyjafréttir standa fyrir opnum framboðsfundi vegna sveitarstjórnarkosninganna 2026 í Eldheimum fimmtudaginn 14. maí kl. 17:00. Húsið opnar kl. 16:45. Á fundinum munu fulltrúar frá framboðunum þremur í Vestmannaeyjum – Eyjalistanum, Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum – kynna áherslur sínar og svara spurningum fundargesta. Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir opnar, málefnalegar og upplýsandi umræður í aðdraganda […]

Þingnefnd boðar opinn fund um stöðu samgangna til Eyja

Þann 26. apríl síðastliðinn óskaði Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, eftir opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd með Eyjólfi Ármannssyni, innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar fyrir landið allt. Beiðnin var samþykkt einróma á fundinum og tók ráðherra strax jákvætt í málið.  Tilefni fundarbeiðninnar er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa […]

Hákon Már Örvarsson gestakokkur á GOTT

Hákon Már Örvarsson er einn fremsti matreiðslumeistari Íslands og margverðlaunaður kokkur með víðtæka alþjóðlega reynslu. Hann hlaut bronsverðlaun í hinni virtu Bocuse d’Or keppni árið 2001, sem oft er kölluð heimsmeistarakeppni matreiðslumanna, og hefur síðan þá verið í fremstu röð í íslenskri og norrænni matargerð. Á ferli sínum hefur Hákon starfað á Michelin-veitingastöðum, þar á […]

Allt undir í Eyjum – ÍBV þarf sigur

Kvennalið ÍBV í handbolta stendur frammi fyrir stórleik í kvöld þegar Valur kemur til Vestmannaeyja í fjórða leik úrslitaeinvígis Olísdeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Íþróttamiðstöðinni og er ljóst að allt verður undir hjá Eyjakonum. Valur leiðir einvígið 2-1 eftir þrjá leiki en ÍBV svaraði af krafti í síðasta leik liðanna þegar Eyjakonur unnu sannfærandi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.