Allt undir í Eyjum – ÍBV þarf sigur
Birna María Unnarsdóttir í baráttunni. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta stendur frammi fyrir stórleik í kvöld þegar Valur kemur til Vestmannaeyja í fjórða leik úrslitaeinvígis Olísdeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Íþróttamiðstöðinni og er ljóst að allt verður undir hjá Eyjakonum.

Valur leiðir einvígið 2-1 eftir þrjá leiki en ÍBV svaraði af krafti í síðasta leik liðanna þegar Eyjakonur unnu sannfærandi 35:27 sigur á Hlíðarenda á laugardag og minnkuðu muninn í einvíginu.

Fyrsti leikur liðanna fór fram 2. maí þar sem Valur hafði betur 39:33 í Reykjavík. Valskonur fylgdu því svo eftir með 25:23 sigri í Vestmannaeyjum þann 5. maí áður en ÍBV sló til í þriðja leiknum. Með sigri í kvöld jafnar ÍBV einvígið og knýr fram oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

Kalla eftir troðfullu húsi

Í tilkynningu frá Handknattleiksdeild ÍBV eru stuðningsmenn hvattir til að fjölmenna á völlinn og skapa sterka heimavallarstemningu.

„Þessi leikur skiptir gríðarlega miklu máli og nú þurfum við á öllum að halda,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Upphitun hefst klukkan 17:00 og verða hamborgarar og drykkir til sölu í húsinu fyrir leik.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.