Þingnefnd boðar opinn fund um stöðu samgangna til Eyja
Staðan í dag er sú að Herjólfur er bilaður, dýpkunarskipið er bilað og enn er ekki fullt dýpi í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Þann 26. apríl síðastliðinn óskaði Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, eftir opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd með Eyjólfi Ármannssyni, innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar fyrir landið allt. Beiðnin var samþykkt einróma á fundinum og tók ráðherra strax jákvætt í málið. 

Tilefni fundarbeiðninnar er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu Landeyjahafnar. Núverandi staða annar ekki samgönguþörf til og frá Eyjum. Baldur, Breiðafjarðarferjan, hefur verið kallaður til sem varaskip, sem sýnir að vandinn nær út fyrir Vestmannaeyjar og varðar ferjusamgöngur á landsvísu. Þetta ástand er ósjálfbært og skapar gríðarlega óvissu fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum í heild, sagði m.a. í erindi þingmannsins.

Fundartími er nú staðfestur en fundurinn verður haldinn þann 18. maí kl. 15:00 og verður er í beinu streymi frá vef Alþingis. Á dögunum heimsótti Halla Hrund Vestmannaeyjar og fundaði með bæjarstjóra um málið. Hún mun einnig bjóða uppá viðtalstíma fyrir Eyjamenn í aðdraganda fundarins, en hægt er að skrá sig hér.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.