Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði á fundi umhverfis- og
samgöngunefndar í morgun eftir opnum fundi nefndarinnar með Eyjólfi Ármannssyni
innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja sem og nauðsyn heildstæðrar
ferjuáætlunar fyrir landið allt.
Tillagan þingmannsins var samþykkt einróma.
Tilefni fundarbeiðninnar er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega
vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu Landeyjahafnar. Núverandi staða annar ekki
samgönguþörf til og frá eyjum. Baldur, Breiðafjarðarferjan, hefur verið kallaður til sem varaskip,
sem sýnir að vandinn nær út fyrir Vestmannaeyjar og varðar ferjusamgöngur á landsvísu. Þetta
ástand er ósjálfbært og skapar gríðarlega óvissu fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum í heild.
Á fundinum með ráðherra mun Halla Hrund óska eftir því að ráðherra geri grein fyrir aðgerðum
næstu vikna og mánaða vegna Landeyjahafnar, viðhalds Herjólfs og varaskipakosts. Þá vill hún
að rætt verði hvort tímabært sé að móta heildstæða ferjuáætlun fyrir Ísland þar sem kaup,
endurnýjun, viðhald og varaskip ferja verði tímasett og fjármögnuð sem hluti af
samgönguáætlun.
Vestmannaeyjar eru einstakt samfélag í þjóðhagslegu tilliti og ferjuleiðin þangað gegnir í reynd
hlutverki þjóðvegar fyrir íbúa og atvinnulíf. Því telur Halla Hrund mikilvægt að skoðað verði hvort
leiðin eigi að njóta sambærilegs forgangs og hluti af grunnkerfi samgangna, til dæmis með
skilgreiningu sem þjóðferjuleið.
Mikilvægt sé að móta heildarsýn sem felur í sér örugga höfn, öflugan Herjólf, raunhæfan
varaskipakost og langtímaáætlun um ferjusamgöngur um allt land. Samgöngur til
Vestmannaeyja eru ekki sérmál Vestmannaeyja einna. Málið varðar búsetuöryggi, atvinnulíf,
ferðaþjónustu, almannavarnir og jafnræði byggða.
Í ofangreindu ljósi óskaði Halla Hrund eftir því að ráðherra svari meðal annars eftirfarandi
spurningum:
áreiðanleika samgangna til og frá Vestmannaeyjum?
dýpkun, viðhald og rekstraröryggi hafnarinnar?
bilanir, viðhald eða veður valda röskun á áætlunarsiglingum?
fyrirsjáanlegar samgöngur við Vestmannaeyjar?
rannsókna félagsins Eyjaganga sem stendur að rannsóknum um fýsileika gerð
jarðgangna til Vestmannaeyja?
hliðsjón af stærð samfélagsins og þjóðhagslegu mikilvægi atvinnulífs þar?
ferjum verða tímasettar og fjármagnaðar sem hluti af samgönguáætlun?