Hákon Már Örvarsson gestakokkur á GOTT
Hákon Már Örvarsson. Mynd/Karl Petesson

Hákon Már Örvarsson er einn fremsti matreiðslumeistari Íslands og margverðlaunaður kokkur með víðtæka alþjóðlega reynslu. Hann hlaut bronsverðlaun í hinni virtu Bocuse d’Or keppni árið 2001, sem oft er kölluð heimsmeistarakeppni matreiðslumanna, og hefur síðan þá verið í fremstu röð í íslenskri og norrænni matargerð.

Á ferli sínum hefur Hákon starfað á Michelin-veitingastöðum, þar á meðal hjá Léa Linster í Lúxemborg, og gegnt lykilhlutverkum sem yfirkokkur á veitingastöðum á borð við Vox og Hótel Holt. Hann hefur einnig verið í fararbroddi við að kynna íslenskt hráefni á alþjóðavettvangi og tekið virkan þátt í mótun nýrrar norrænnar matargerðar.

Á MATEY sjávarréttahátíðinni mun Hákon Már elda á veitingastaðnum GOTT, þar sem hann sameinar krafta sína með yfirmatreiðslumönnum staðarins. Gestir geta átt von á skapandi og fáguðum réttum þar sem íslenskt sjávarfang nýtur sín til fulls, framreitt af einum reyndasta og virtasta kokki landsins.

Haldin dagana 22.-23.maí

Hátíðin sem er samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, Visit Vestmannaeyjar, Ísfélags., Vinnslustöðvarinnar hf, Laxey og Fab Lab Vestmannaeyjar verður haldin dagana 22.-23.maí næstkomandi.

Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á lax frá landeldinu Laxey. Tanginn og Kráin bjóða upp á sérrétti í tilefni hátíðarinnar og Brothers Brewery kynnir sérlagaðan MATEY-bjór.

MATEY er meira en matur. Þetta er helgi þar sem stórbrotin náttúra, lifandi samfélag og sjávarréttir í heimsklassa skapa ógleymanlega upplifun. Tryggðu þér borð í tæka tíð.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.