Það er einfalt í grunninn. Fjölskyldur setjast að þar sem tækifæri eru til staðar, þar sem samfélagið er í sókn og þar sem daglegt líf gengur upp. Við viljum að ungt fólk sjái framtíð sína í Eyjum, geti keypt sér húsnæði, stofnað fjölskyldu og fundið öryggi í samfélaginu.
Vestmannaeyjar hafa alla burði til að vera slíkt samfélag og eru mörg teikn á lofti um að við séum á réttri leið. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það krefst skýrrar sýnar, ábyrgra ákvarðana og hugrekkis til að hugsa stórt.
Fólk flytur ekki til Eyja nema störf séu í boði. Á bak við hvert starf er fjölskylda, framtíðaráform og ákvörðun um hvar fólk kýs að byggja líf sitt. Það á við um ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref, fjölskyldur sem vilja byggja upp sitt líf og þá sem vilja snúa aftur heim. Það á líka við um fjölskyldurnar sem þegar hafa valið Eyjar sem sitt heimili.
Sterkt atvinnulíf er því ekki aukaatriði, heldur forsenda fyrir öflugu samfélagi. Fólk er ólíklegra að fjárfesta í heimili og sinni framtíð í samfélagi sem stendur í stað. Verðmætasköpun atvinnulífsins er grunnurinn að þeirri þjónustu og velferð sem samfélagið byggir á.
Við sjálfstæðismenn teljum mikilvægt að skapa skilyrði þar sem fyrirtæki geta vaxið, þróast og skapað ný tækifæri. Til þess þarf rými til uppbyggingar, nýsköpunar og fjárfestinga. Sveitarfélagið þarf að vera virkur þátttakandi í þeirri vegferð, ekki hindrun.
Skipulag, leyfisveitingar og samskipti við atvinnulífið þurfa að vera skýr, skilvirk og lausnamiðuð. Við þurfum að horfa fram á við og spyrja okkur hvaða atvinnugreinar við viljum sjá vaxa í Eyjum á næstu árum og ekki síður hvernig við ætlum að skapa þeim skilyrði til að dafna. Það gerum við með samtali, trausti og ábyrgri uppbyggingu.
Sterkir innviðir eru lykill að því að þetta gangi upp. Rafmagn, vatn, samgöngur og hafnaraðstaða eru ekki bara tæknileg atriði, þetta eru grunnforsendur fyrir áframhaldandi vexti samfélagsins.
Við höfum þegar séð jákvæð skref, til dæmis í raforkuöryggi. Næstu skref þurfa að fylgja með sama krafti. Vatnsmál, samgöngur og hafnarmál þurfa að vera í forgangi ef við ætlum að styðja við áframhaldandi uppbyggingu.
Höfnin er þegar komin að þolmörkum og farin að verða flöskuháls sem hægir á vexti og takmarkar frekari uppbyggingu. Við sjálfstæðismenn viljum halda áfram að byggja upp innviði sem styðja við bæði núverandi atvinnulíf og þau tækifæri sem framtíðin getur fært okkur. Án sterkrar innviðauppbyggingar stöðvast vöxturinn.
Samfélag í sókn snýst ekki bara um atvinnu. Það snýst líka um að skapa umhverfi þar sem fólk vill búa. Menntamál skipta þar lykilmáli. Leik- og grunnskólar eru undirstaða þess að fjölskyldur finni fyrir öryggi og stöðugleika. Framhaldsskólinn gegnir einnig lykilhlutverki, sérstaklega þegar kemur að tengingu við atvinnulíf og framtíðartækifæri ungs fólks.
Við sjálfstæðismenn viljum halda áfram að styðja við öflugt skólastarf og þjónustu sem tekur mið af raunverulegum þörfum fólks. Velferð og vellíðan þurfa að vera í forgangi, bæði hjá ungu fólki og eldri borgurum.
Lítil samfélög standa frammi fyrir einföldu vali: annaðhvort eru þau í sókn eða samdrætti.
Ef við ætlum að vera áfram í sókn þurfum við að þora að hugsa stærra. Ekki með órökstuddum loforðum, heldur með skýrri stefnu, ábyrgri uppbyggingu og góðu samtali við íbúa og atvinnulíf.
Það snýst um að skapa skilyrði þar sem hlutirnir gerast. Þar sem fyrirtæki geta vaxið, ný tækifæri orðið til og fjölskyldur byggt upp sitt líf með framtíðina fyrir augum.
Við sjálfstæðismenn viljum halda Vestmannaeyjum áfram í sókn. Samfélagi þar sem tækifæri eru til staðar, þar sem fjölskyldur vilja búa og þar sem framtíðin er byggð á ábyrgum grunni.
Við viljum að fleiri sjái framtíð sína í Eyjum og finni að hér sé gott að búa, ala upp börn og byggja upp líf til lengri tíma. Það gerist ekki með því að gera meira af öllu, heldur með því að gera réttu hlutina, á réttum tíma.
Óskar Jósúason, upplýsingafulltrúi og varabæjarfulltrúi.
Skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.