Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Oddvitar framboðana sem bjóða fram í Eyjum í ár. Eyþór Harðarson frá D-lista, Arndís María Kjartansdóttir frá E-lista og Jón Þór Guðjónsson frá M-lista. Mynd/samsett.

Eyjafréttir standa fyrir opnum framboðsfundi vegna sveitarstjórnarkosninganna 2026 í Eldheimum fimmtudaginn 14. maí kl. 17:00. Húsið opnar kl. 16:45.

Á fundinum munu fulltrúar frá framboðunum þremur í Vestmannaeyjum – Eyjalistanum, Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum – kynna áherslur sínar og svara spurningum fundargesta.

Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir opnar, málefnalegar og upplýsandi umræður í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Fundargestum gefst kostur á að leggja fram hnitmiðaðar spurningar til frambjóðenda auk þess sem framboðin fá tækifæri til að bera fram spurningar sín á milli.

Dagskráin verður með þeim hætti að einn fulltrúi frá hverjum lista fær fyrst allt að fimm mínútur til að kynna sitt framboð. Að því loknu taka við spurningar milli framboða og síðan opnar umræður með þátttöku fundargesta. Fundinum lýkur með stuttum lokaorðum frá framboðunum.

Eyjafréttir hvetja Vestmannaeyinga til að mæta og taka þátt í málefnalegri umræðu um framtíð samfélagsins.

Nýjustu fréttir

Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.