Tafir á haffærnisskírteini Herjólfs III
Óvæntar kröfur um öryggisbúnað settu tímalínuna úr skorðum
Herjólfur III. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Unnið er áfram að því að fá haffærnisskírteini fyrir Herjólf III en ferlið hefur reynst bæði flóknara og tímafrekara en upphaflega var gert ráð fyrir. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Herjólfur III hefur legið við bryggju í um tvö ár og það hefur reynst erfiðara og tímafrekara að fá haffærnisskírteini fyrir hann en áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Pétur.

Að hans sögn er flest annað á áætlun, en tafir tengjast fyrst og fremst öryggisbúnaði skipsins.

„Beðið er svara um afgreiðslutíma á íhlutum í mikilvægan öryggisbúnað sem gæti tafið það að Herjólfur III fái haffærniskírteini,“ segir hann.

Pétur segir jafnframt að nýjar kröfur hafi komið fram í ferlinu sem hafi haft áhrif á framgang málsins.

„Varðandi öryggisbúnaðinn komu fram kröfur sem voru umfram það sem Vegagerðin hafði áætlað að þyrfti fyrir haffærnina og það hefur fyrst og fremst sett tímalínuna úr skorðum,“ segir Pétur.

Herjólfur III hefur verið mikið í umræðunni undanfarnar vikur í ljósi stöðunnar í samgöngum við Vestmannaeyjar og bilunar í Herjólfi IV, sem nú siglir á annarri skrúfu.

Nýjustu fréttir

Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi
Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.