Bærinn býður deiluaðilum fundaraðstöðu
Bæjarráð lýsir þungum áhyggjum af þeirri þjónustuskerðingu sem bæjarbúar, fyrirtæki og gestir verða fyrir vegna yfirvinnubanns undirmanna á Herjólfi í bókun sem samþykkt var á fundi bæjarráðs í kvöld. �??�?etta hefur þær afleiðingar að eingöngu er siglt eina ferð á dag á virkum dögum og ekkert um helgar. Utan þess tíma er þjóðvegurinn til Eyja lokaður. Nú þegar er skaðinn orðinn verulegur og óþægindin mikil. �?ví er mikilvægt að samningar dragist ekki frekar. Eins og gefur að skilja mun bæjarráð ekki taka efnislega afstöðu til deilunnar enda hefur það engar forsendur til slíks. Um leið og full virðing er borin fyrir mikilvægi þessara samninga fyrir áhöfn og rekstraraðila Herjólfs er það skýr krafa bæjarráðs að samningar verði ekki dregnir umfram það sem nú þegar er orðið. Krafan er sú að samgöngur við Vestmannaeyjar séu öruggar og ásættanlegar.�??
�?á kemur fram í bókuninni að bæjarráð hafi áhyggjur af því hversu mikið ber á milli deiluaðila og að viðræður séu ekki í gangi. �??Ekki hefur verið boðað til fundar á næstu dögum. Slíkt ástand er óþolandi. Bæjarráð býður því fram húsakynni Vestmannaeyjabæjar undir samningafundi deiluaðila og telur víst að með því að funda í Vestmannaeyjum sjái deiluaðilar betur mikilvægi þess að samið verði sem fyrst,�?? segir í bókun bæjarráðs.

Nýjustu fréttir

ÍBV semur við serbneskan framherja
Metár og hagnaður langt yfir áætlun
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.