ÍBV semur við serbneskan framherja
Filip Stuparevic. Mynd/ ÍBV Knattspyrna

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við serbneska leikmanninn Filip Stuparevic. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Filip er 25 ára framherji og kemur með reynslu víða úr Evrópu. 

Í tilkynningunni segir ,,Filip hefur meðal annars spilað með FK Vozdovac, FK Metalac, FK Pribram, NK Domzale, Greenock Morton og Motherwell FC. Hann hefur gott orð af sér sem góður markaskorari á sínum yngri árum í Serbíu og víðar. 

Þar segir einnig ,,Þjálfari ÍBV, Alaksandar Linta, vann með honum á hans yngri árum og ætti því að þekkja kosti hans og galla. Við bjóðum Filip velkomin til Eyja og óskum honum alls hins besta í Bestu deildinni í sumar”. 

ÍBV hefur leik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á morgun, laugardag, þegar þeir taka á móti Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli kl. 12:00.

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.