Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gær. Uppistaðan í afla beggja skipa var ýsa. Veiðiferðir skipanna voru stuttar eða um þrír sólarhringar. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við skipstjórana og spurði frétta.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þokkalega hefði gengið að veiða en hálfgert skítaveður hefði verið allan tímann. „Við byrjuðum á Pétursey og vorum síðan einnig á Víkinni, Ingólfshöfða og í Meðallandsbugtinni. Þetta er að ýmsu leyti skrítin vertíð. Venjulega kemur vertíðarþorskurinn á miðin við Eyjar á eftir loðnunni en nú lætur hann bíða eftir sér. Það veiðist góður þorskur annað veifið en það hefur ekki verið samfelld veiði eins og gjarnan er á þessum árstíma,” sagði Birgir Þór.
Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að veiðin í túrnum hefði gengið ágætlega en þarna hefði verið um veltingstúr að ræða. „Það veiddist ýsa á daginn en á nóttunni fengust aðrar tegundir. Við byrjuðum á að fara á Pétursey en síðan var haldið á Víkina, Höfðann og í Breiðamerkurdýpið og loks endað á Síðugrunni. Menn bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu á miðunum en hún hlýtur að koma,” sagði Ragnar Waage.