Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló. Hönnunina má sjá hér til hægri á Júlí Örnu. Myndir: Sigríður Unnur.

Í gær fór fram undankeppni hönnunarkeppninnar Stíls á sviði Leikfélags Vestmannaeyja þar sem nemendur í 8.–10. bekk sýndu afrakstur vinnu sinnar. Keppnin er samstarfsverkefni Grunnskóla Vestmannaeyja og Féló og er hluti af keppni sem haldin er á vegum Samfés.

Þema keppninnar í ár var „Á tímum Viktoríu“ og sækir innblástur í tískustíl Viktoríutímabilsins. Nemendur hönnuðu heildarútlit sem samanstóð af fatnaði, hári og förðun. Greinilegt var að hóparnir höfðu lagt mikla vinnu í undirbúning og sköpunarferlið.

Alls tóku fimm hópar þátt í undankeppninni. Að lokum var einn hópur valinn til að fara fyrir hönd Vestmannaeyja. Það voru þær Júlí Arna Sigurjónsdóttir, Elísabet Inga Þórisdóttir og Aþena Rós Einarsdóttir sem hlutu sigur með verkefni sitt „Gyllta flóran“.

Lokakeppnin fer fram laugardaginn 14. mars í Digranesi í Kópavogi, þar sem fulltrúar félagsmiðstöðva víðs vegar að af landinu etja kappi í hönnun og framsetningu.

Einnig hlutu Emma, Mía Bjarný og Ronja viðurkenningu fyrir möppu sína.

Kennsla og umsjón með Stíls verkefninu var í höndum Sigríðar Unnar Lúðvíksdóttur, en nemendur hafa unnið að verkefninu í vetur sem hluta af vali í skólanum.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.