Ný hljómsveit sem nefnist Tríó Glóðir hefur nú stigið fram í sviðsljósið sem með blíðum tónum Oddgeirs Kristjánssonar kemur öllum í rétta stemningu. Tríóið hefur nú gefið út sína fyrstu breiðskífu, Bjartar vonir. Á plötunni eru margar af þekktustu perlum Oddgeirs, eins og Ég veit þú kemur og Ágústnótt, í bland við minna þekkt lög.