Blaðamaður og ljósmyndari frá Daily Mail í Englandi voru viðstaddir opnunarleik Íslandsmótsins á Hásteinsvelli þegar íBV lagði ÍA. Blaðamaðurinn, Matt Barlow lýsir upplifun sinni af leiknum og umhverfinu en tilgangurinn var auðvitað að fylgjast með enska landsliðsmarkverðinum fyrrverandi David James. „Hann er fluttur á vindbarinn eldfjallaklett við suðurströnd Íslands, þar sem 4500 manns búa og átta milljón lundar,“ segir Barlow m.a. í grein sinni.