Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju

Fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins í gær að Vestmannaeyjar séu meðal þeirra staða sem norski fóðurframleiðandinn Skretting hefur til skoðunar. Eru Vestmannaeyjar meðal þriggja staða á Íslandi sem norski fiskafóðurrisinn Skretting skoðar fyrir mögulega uppbyggingu fóðurverksmiðju. Þetta kom fram í frétt Viðskiptablaðsins í gær, sem byggir á umfjöllun IntraFish. Samkvæmt fréttinni vinnur Skretting að undirbúningi […]

Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini

default

Óvíst er hvenær Herjólfur III getur hafið siglingar á ný, en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er skipið enn í viðamiklu viðhaldi og getur ekki fengið haffærisskírteini fyrr en sérstök prófun á rýmingarbúnaði þess hefur farið fram. Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Eyjafrétta kemur fram að Herjólfur III hafi verið í slipp frá byrjun júní þar […]

Morgan Goði – Íþróttamaður mánaðarins

Morgan Goði Garner, leikmaður karlaliðs ÍBV í handbolta, er íþróttamaður mánaðarins. Morgan sem er markmaður fékk tækifæri með meistaraflokki ÍBV í Olís deild karla í vetur. Hann átti til að mynda frábæra innkomu gegn Aftureldingu í 18. umferð Olís deildarinnar þar sem hann varði 14 skot. Hann hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands og var […]

Þrír ættliðir stóðu vaktina í Tvistinum

TM-mót stúlkna og Orkumót drengja eru ávallt stórar helgar í Vestmannaeyjum. Þá streyma hingað keppendur, þjálfarar, fararstjórar og aðstandendur víðs vegar að og líf fjör færist í bæinn. Mikið annríki fylgir því fyrir veitingastaði og verslanir. Einn þeirra staða sem finnur vel fyrir auknum umsvifum er Tvisturinn, þar sem Birgir Sveinsson ræður ríkjum. „Allt gekk […]

Dagskrá 17. júní

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, verður haldinn hátíðlegur hér í Eyjum með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagurinn verður með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður upp á skrúðgöngu, hátíðarathöfn á Vigtartorgi, fjölbreytt skemmtiatriði og ýmsa afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild sinni. 09:00  Fánar dregnir að húni í bænum. 10:30 […]

Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt yfir áætlun

Yfir eyjar, HBH 26

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í síðustu viku var lagt fram fjögurra mánaða rekstraryfirlit fyrir árið 2026. Fram kemur í fundargerð að heildartekjur samstæðu A og B hluta Vestmannaeyjabæjar hafi verið 8,8% hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Á sama tíma var heildarrekstrarkostnaður 1,4% hærri en áætlað hafði verið. Samkvæmt yfirlitinu […]

Binni í Vinnslustöðinni – Kynni mín af Ísleifsfólki

Árið 1992 réði ég mig til starfa hjá Steina „stóra“ í útibúi Íslandsbanka í Vestmannaeyjum. Verkefnið var að þjónusta fyrirtækin í Eyjum. Ég kynntist útgerðarmönnunum einum af öðrum í gegnum lánveitingar, einkum endurfjármögnun eldri lána, því reksturinn skapaði ekki nægjanlegan afgang til að greiða þau niður. Tiltölulega fáir þurftu ekki á slíkri aðstoð að halda. […]

Sonur fékk eignarhlut sinn leiðréttan í Landsrétti

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands í máli milli móður og sonar vegna eignarhlutfalla í íbúð sem þau festu kaup á árið 2011. Niðurstaðan er sú að sonurinn telst eigandi 86,9% eignarinnar en móðirin 13,1%, þrátt fyrir að kaupsamningur hafi upphaflega kveðið á um 40% hlut sonarins og 60% hlut móðurinnar. Fjármagnaði nær öll kaupin […]

Alexandra Ósk – Íþróttamaður mánaðarins

Alexandra Ósk Viktorsdóttir, leikmaður kvennaliðs ÍBV í handbolta, er íþróttamaður mánaðarins. Alexandra sem leikur í hægra horninu átti mjög gott tímabil með ÍBV í Olís deild kvenna í vetur. Hún hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, u-16, u-18 og u-20. Hún varð einnig bikarmeistari með 3. flokki fyrr í vetur. Alexandra hlaut fréttabikarinn á […]

Sólarbekkurinn á Kletti vinsæll áfangastaður

Sólin hefur leikið við Eyjafólk síðustu daga og enn skín hún, þótt vindurinn láti aðeins á sér kræla. Þegar vel viðrar í Eyjum er fátt notalegra en að líta við á Kletti, fá sér ís eða eitthvað annað gott og setjast á bekkinn fyrir framan í léttu spjalli. Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, rakst á þessa […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.