Dagskrá 17. júní
Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur á Vigtartorgi.

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, verður haldinn hátíðlegur hér í Eyjum með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagurinn verður með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður upp á skrúðgöngu, hátíðarathöfn á Vigtartorgi, fjölbreytt skemmtiatriði og ýmsa afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild sinni.

09:00 
Fánar dregnir að húni í bænum.

10:30 – Hraunbúðir
• Fjallkonan, Björk Elíasdóttir, flytur hátíðarljóð.
• Tónlistaratriði frá Karlakór Vestmannaeyja.

11:00 – Landakirkja
Hátíðarmessa í Landakirkju.

10:00–17:00 – Sagnheimar
Frítt inn fyrir bæjarbúa og aðra gesti.

13:00–17:00 – Fágætissalur
Frítt inn fyrir bæjarbúa og aðra gesti í Fágætissal Sagnheima.

13:30 – Ráðhús
Bæjarbúar og aðrir gestir safnast saman fyrir skrúðgöngu.

13:45 – Skrúðganga
Gengið verður í lögreglufylgd frá Ráðhúsinu að Vigtartorgi.
Fánaberar frá Skátafélaginu Faxa leiða gönguna og félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika undir.

14:00 – Vigtartorg
• Kjartan Vídó Ólafsson, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs, setur hátíðina.
• Lúðrasveit Vestmannaeyja spilar.
• Hátíðarræða: Þórunn Pálsdóttir.
• Börn af leikskólanum Kirkjugerði syngja nokkur lög.
• Fjallkonan, Björk Elíasdóttir, flytur hátíðarljóð.
• Leikfélag Vestmannaeyja með atriði úr Skilaboðaskjóðunni.
• Karlakór Vestmannaeyja flytur tónlistaratriði.
• Leikfélag Vestmannaeyja verður með vappi, andlitsmálningu, leiki og fjör ef veður leyfir.
• Sundfélag ÍBV verður með poppsölu.
• Fimleikafélagið Rán verður með Candyfloss-sölu.
• Konur frá Oddfellowstúkunni Vilborgu verða með vöfflu- og kaffisölu og rennur allur ágóði til góðgerðarmála.

15:00 – Hraunbúðir
Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur fyrir heimilisfólk og aðra hátíðargesti.

16:00 – Hásteinsvöllur
Mjólkurbikar kvenna: ÍBV – FH

Nýjustu fréttir

Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.